Kópavogsbær útrýmir launamun kynjanna

mbl.is/Hjörtur

Launamunur kynja hjá Kópavogsbæ er enginn þegar bornir eru saman einstaklingar í sambærilegum störfum, á sama aldri, með sömu starfsreynslu og færni. Þetta kemur fram í nýrri launarannsókn sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) vann fyrir Kópavogsbæ og kynnt var í morgun á fundi jafnréttis- og mannréttindaráðs.

Í fréttatilkynningu frá Kópavogsbæ segir að rannsóknin hafi verið unnin upp úr launabókhaldi Kópavogsbæjar á mánaðartímabili. Unnið var með launagögn allra starfsmanna í yfir 40% starfshlutfalli, alls 1.891 starfsmanns sem eru 80% allra starfsmanna Kópavogsbæjar.

Niðurstaðan er sú að þegar leiðrétt hefur verið fyrir áhrifaþáttum á laun; aldri, starfsaldri, menntun, sviði og vinnutíma, er ekki marktækur munur á launum kynja. Síðast þegar sambærileg rannsókn var gerð var kynbundinn launamunur 3,25% körlum í vil.

Konur eru í miklum meirihluta starfsmanna Kópavogsbæjar, eða um 80%. Kynin dreifast ekki jafnt, hvorki eftir sviðum né starfi. Hlutfallslega fleiri karlar hjá Kópavogsbæ vinna í tekjuhæstu starfsgreinunum og karlar vinna að meðaltali fleiri yfirvinnutíma en konur sem hefur áhrif á heildarlaun þeirra. Meðallaun karla eru 18% hærri en meðallaun kvenna, áður en tekið er tillit til áhrifaþátta sem áður hefur verið getið um.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK