Úrvinnslu stöðugleikaeigna lokið

Með sölunni á Lyfju hf. í opnu söluferli er ráðstöfun …
Með sölunni á Lyfju hf. í opnu söluferli er ráðstöfun stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols lokið. mbl.is/Ómar Óskarsson

Félagið Lindarhvoll ehf., sem stofnað var til að annast umsýslu, fullnustu og sölu svokallaðra stöðugleikaeigna, lauk á dögunum opnu söluferli Lyfju hf. með undirritun kaupsamnings við SID ehf. Það félag er í eigu SIA III, Þarabakka ehf. og Kasks ehf. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands.

Með sölunni á Lyfju hf. í opnu söluferli er ráðstöfun stöðugleikaeigna í umsýslu Lindarhvols lokið.

Í tilkynningunni segir að félagið hafi með sölunni komið langstærstum hluta þeirra eigna sem því var falin umsýsla með í laust fé.

„Samkomulag er um það milli stjórnar Lindarhvols og fjármála- og efnahagsráðuneytisins að fella við svo búið niður samning sem ráðuneytið gerði við félagið í apríl 2016 um úrvinnslu og umsýslu stöðugleikaeigna frá og með 7. febrúar. Í kjölfarið verður Lindarhvoli ehf. slitið.“

Þar segir jafnframt að þær takmörkuðu eignir sem eftir standa séu þess eðlis að virði þeirra verði best endurheimt með tíð og tíma.

„Að stærstum hluta er um að ræða kröfur í þrotabú og önnur innheimtumál, lánasamninga, fjársópseignir og skuldabréf Kaupþings, auk afkomuskiptasamnings sem tengist sölu á Arion banka. Umsýslu og eftirliti með umræddum eignum verður áfram sinnt í umboði ríkissjóðs og mun andvirði þeirra skila sér inn á stöðugleikareikning ríkissjóðs við fullnustu. Til viðbótar eru nokkrar óverulegar stöður í óskráðum hlutabréfum og verður umsýslu þeirra komið fyrir í höndum viðeigandi ríkisaðila.“

Í tilkynningunni kemur fram að andvirði þeirra stöðugleikaeigna sem búið er að innleysa nemi alls um 207,5 milljörðum króna. Þá eru frátalin framlög vegna viðskiptabanka og aðrar óinnleystar eignir.

„Þessari fjárhæð hefur lögum samkvæmt verið ráðstafað inn á stöðugleikareikning í eigu ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands og þær nýttar til að greiða niður útistandandi skuldir ríkissjóðs, til að mæta tekjutapi vegna sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki og til að fjármagna lífeyrisskuldbindingar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK