30 MW fyrir ofurtölvuafl og blockchain-þjónustu

Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri Advania Data Centers, og Hörður Arnarson, …
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri Advania Data Centers, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifuðu undir. Ljósmynd/Aðsend

Landsvirkjun og hátæknifyrirtækið Advania Data Centers hafa undirritað rafmagnssamning um afhendingu á 30 MW til gagnaversins á Fitjum í Reykjanesbæ. Unnið er að mikilli stækkun gagnaversins og er ráðgert að umsvif Advania Data Centers þrefaldist. Starfsmenn gagnaveranna verða um 50 talsins og áætluð velta á árinu er um sex milljarðar króna.

Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að samningurinn geri Advania Data Centers kleift að mæta sívaxandi spurn eftir ofurtölvuafli og sérfræðiþjónustu í blockchain-tækni.

„Endurnýjanleg orka og íslenskt veðurfar eiga þátt í að skapa hagstæðar aðstæður í gagnaverinu á Fitjum. Meðal þess sem laðar erlenda viðskiptavini til Advania Data Centers er að gagnaverið nýtir kalda loftið til að kæla tækjabúnað sem hitnar gríðarlega við notkun. Loftkælingin kemur í veg fyrir að eyða þurfi mikilli orku í að kæla búnaðinn og því er hagkvæmara að knýja hann á Íslandi en víða annars staðar í heiminum,“ segir í tilkynningunni. 

Orkan sem samningurinn nær til verður afhent úr núverandi aflstöðvakerfi Landsvirkjunar, sem rekur 14 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur. Þá stendur yfir stækkun Búrfellsvirkjunar sem áætlað er að gangsetja í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK