Arion banki greiðir tugi milljarða til hluthafa

mbl.is/Eggert

Á hluthafafundi Arion banka í dag var samþykkt að 25 milljarðar króna yrðu greiddir til hluthafa. Auk þess er stjórn bankans veitt umboð og heimild til endurkaupa á allt að 10% hlut í félaginu fyrir að hámarki 18,8 milljarða króna. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Arion banka til Kauphallarinnar en þar er tekið fram að end­ur­kaup á hluta­bréfum drag­ist frá arðgreiðslunni. Arðgreiðslan og endurkaupin eru sögð að fullu í samræmi við langtímamarkmiði Arion banka um að minnka umfram eigið fé bankans.

Að framkvæmd lokinni lækki eiginfjárhlutfall bankans um ríflega 3% en sé engu að síður vel umfram kröfur FME og það sem bankinn telji hæfilegt. Framkvæmdin er hins vegar háð því að Kaupskil verði búin að selja að minnsta kosti 2% hlut í bankanum fyrir 15. apríl. 

Greint var frá því í Morgunblaðinu í dag að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins muni ekki kaupa hlut í Ari­on banka á grund­velli til­boðs sem Kaupskil, stærsti eig­andi hans, gerðu þeim fyr­ir skemmstu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK