Tafir í Vatnsmýri þrýsta á byggingu nýrra hverfa

Lóðir hafa losnað hægar í Vatnsmýrinni en borgin ráðgerði.
Lóðir hafa losnað hægar í Vatnsmýrinni en borgin ráðgerði. mbl.is/Baldur

Tafir á „losun byggingarlands“ í Vatnsmýri hafa aukið þrýsting á flutning landfrekrar og grófrar iðnaðarstarfsemi úr Ártúnshöfða.

Þetta kemur fram í endurmati á aðalskipulagi Reykjavíkur. Færa á iðnað lengra út á jaðarsvæðin. Það er ein mesta breytingin á skipulagi borgarinnar síðustu áratugi. Mun hún fela í sér tilflutning starfa.

Hjálmar Sveinsson, formaður umhverfis- og skipulagsráðs, segir þetta hluta af þeirri stefnu að uppbygging íbúða fari fyrst og fremst fram á þéttingarsvæðum. „Ég lít á þetta sem endurreisn borgarinnar. Hún er öll á þéttingarsvæðum.“  Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Hjálmar vægi iðnaðar fara minnkandi í höfuðborginni. Það kalli á endurmat iðnaðarsvæða.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK