Hydro gerir tilboð í álverið í Straumsvík

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík. mbl.is/Ómar Óskarsson

Norski álframleiðandinn Norsk Hydro ASA hefur gert skuldbindandi tilboð um kaup á öllu útgefnu hlutafé í álverinu í Straumsvík (ISAL) af Rio Tinto. Tilboðið nær einnig til hollensku skautverksmiðjunnar Aluchemie og sænsku ál-flúoríð verksmiðjunnar Alufluor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norsk Hydro.

Um er að ræða skuldbindandi tilboð um að kaupa álverksmiðju Rio Tinto, Rio Tinto á Íslandi hf. („ISAL“), 53% hlut Rio Tinto í hollensku skaut­verksmiðjunni Aluminium & Chemie Rotterdam B.V. („Aluchemie“), og 50% hlut í sænsku ál-flúoríð verksmiðjunni Alufluor AB („Alufluor“) fyrir 345 milljónir Bandaríkjadala, með fyrirvara um aðlögun kaupverðs eftir lúkningu viðskiptanna.

Í samræmi við ákvæði hollenskra og franskra laga virkjar tilboð Hydro lögboðið samráðsferli við starfsmenn Rio Tinto og aðra hagsmunaaðila. Að því gefnu að samráðsferli verði árangursríkt, og samþykki samkeppnis­yfirvalda Evrópu­sambandsins fáist, er gert ráð fyrir að viðskiptunum verði lokið á öðrum ársfjórðungi 2018. Við það verða ISAL, Aluchemie og Alufluor hluti af starfsemi Hydro á heimsvísu.

Tilboðið endurspeglar trú á áli

„Tilboðið endurspeglar sterka trú okkar á áli, sem er sá málmur sem er í hvað sterkastri sókn á heimsvísu. Að taka þátt á öllum stigum virðiskeðjunnar er lykilatriði í að skapa verðmæti í þessari sókn og ýta undir sjálfbærar aðferðir í rekstri okkar á heimsvísu,“ er haft eftir Svein Richard Brandtzæg, forstjóra Hydro.

Í tilkynningunni kemur fram að Hydro geri ráð fyrir samlegðaráhrifum að því er varðar tækniframþróun, hámarksnýtingu á skautasafni, flutningum og meðhöndlun. Verksmiðja ISAL nýtir sömu tækni og verksmiðja Hydro í Husnes í Noregi, þar sem Hydro tilkynnti fyrir skömmu um enduropnun og tækniuppfærslu á annarri rafgreiningarlínu þeirrar verksmiðju.

„Við sjáum mikla mögulega í því að samnýta hæfni og tækni í álverksmiðjum okkar. Við rekum nú tilraunaverksmiðju í Noregi sem stefnir á að verða sú álframleiðsla í heiminum sem nýtir orkuna best og hefur minnst áhrif á loftslagið. Þessi nýsköpun mun dreifast til annarra verksmiðja Hydro og ISAL mun, sem hluti af samsteypu Hydro, njóta góðs af slíkri tækni og þekkingu,“ er haft eftir Hilde Merete Aasheim, yfirmanni hrámálma­viðskiptasviðs Hydro.

Endurnýjanleg orka fari yfir 70 prósent

Fram kemur í tilkynningunni að gangi kaupin eftir muni þau styrkja leiðandi stöðu fyrirtækisins í Evrópu, en ISAL framleiðir 210.000 mt af fljótandi málmi og samtals 230.000 mt af þrýstimótunarhleifum fyrir evrópska húsnæðis-, byggingar- og flutningsgeirann, í nýlegum steypuskála sem býr yfir nákvæmum úthljóðsprófunarbúnaði. Þetta muni enn fremur styrkja stöðu Hydro sem fyrsta valkosts og leiðandi birgja fyrir þrýstimótunarhleifa í Evrópu.

Einnig er tekið fram að Hydro sé í fararbroddi meðal álframleiðenda í heiminum þegar kemur að endur­nýjanlegri orku. Með 210.000 mt af áli úr endurnýjanlegri orku hjá ISAL aukist heildarafköst Hydro í hráálframleiðslu upp í 2,4 milljónir mt árið 2018 og hlutfall af framleiðslu sem unnið er með endurnýjanlegri orku fer yfir 70 prósent.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK