15% af verðhækkun kemur frá Airbnb

Á höfuðborgarsvæðinu námu leigutekjur af Airbnb 25 milljörðum króna frá …
Á höfuðborgarsvæðinu námu leigutekjur af Airbnb 25 milljörðum króna frá 2014 til 2017. mbl.is/Ómar Óskarsson

Rekja má um 15% af hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis til Airbnb-íbúða. Þetta er meðal niðurstaða rannsóknar sem fjallað er um í rannsóknarritgerð þeirra Lúðvíks Elíassonar og Önundar Páls Ragnarssonar hjá Seðlabanka Íslands.

Þar kemur fram að stærsti hluti Airbnb-íbúða sé til húsa á höfuðborgarsvæðinu, einkum í miðborginni eða 48%. 80% af Airbnb-íbúðunum eru á höfuðborgarsvæðinu og leigutekjur af þeim námu um 25 milljörðum króna frá 2014 til 2017. Það er um 77% af heildarleigutekjum Airbnb-íbúða á Íslandi í fyrra. Leigutekjur af Airbnb-íbúðum í miðborg Reykjavíkur námu í fyrra 14,19 milljörðum króna.

Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að á undanförnum árum hefur færst í vöxt að íbúðarhúsnæði sé nýtt til skammtímaleigu fyrir ferðamenn. Gögn frá AirDNA um bókanir á vef Airbnb eru notuð til að búa til mælikvarða á fjölda íbúða sem eru fyrst og fremst nýttar í skammtímaleigu og nýtast því ekki lengur sem íbúðarhúsnæði fyrir aðra. Þessar upplýsingar eru notaðar til að meta áhrif Airbnb á íbúðaverð. Þá er fjöldi íbúða sem bætist árlega við þann fjölda sem nýttur er til skammtímaleigu borinn saman við fjölda nýrra íbúða sem eru byggðar á árinu.

„Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að árleg hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis sem rekja megi til aukinna umsvifa Airbnb á síðustu þremur árum sé um 2%, en það svarar til um 15% af þeirri hækkun sem orðið hefur á íbúðaverði á þeim tíma. Fjölgun Airbnb-íbúða á þann mælikvarða sem hér er notast við svaraði til helmings til tveggja þriðju þeirra íbúða sem lokið var við að byggja á árinu 2016 á höfuðborgarsvæðinu,“ segir á vef Seðlabankans en ritið má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK