Telur sjóðina of stóra

N1 stefnir að auknum umsvifum með kaupunum á Festi.
N1 stefnir að auknum umsvifum með kaupunum á Festi. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Samkeppniseftirlitið setur alvarlega fyrirvara við samruna Haga og Olís annars vegar og N1 og Festis hins vegar. Ein helsta ástæðan fyrir því er að frumniðurstöður rannsóknar stofnunarinnar á fyrirhuguðum samrunum munu tengjast víðtæku eignarhaldi íslenskra lífeyrissjóða á fyrirtækjunum.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag, að Samkeppniseftirlitið hefur sent út andmælaskjal vegna fyrrnefndra samruna sem komnir eru til vegna harðnandi samkeppni á smásölumarkaði, ekki síst eftir tilkomu Costco á íslenskan markað.

Í andmælaskjalinu kemur fram að samrunarnir verði að öllu óbreyttu ekki heimilaðir. Verði niðurstaðan sú í báðum tilvikum yrði það ekki í fyrsta sinn sem Samkeppniseftirlitið stígur inn í samrunatilraunir sem tengjast komu Costco á markaðinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK