Leyfi Eykon til olíuvinnslu afturkallað

Við undirritun leyfa vegna leitar og vinnslu kolefna á Drekasvæðinu …
Við undirritun leyfa vegna leitar og vinnslu kolefna á Drekasvæðinu árið 2013. Styrmir Kári

Orkustofnun hefur afturkallað leyfi Eykon engery ehf. til olíuleitar á Drekasvæðinu, en það er mat stofnunarinnar að fyrirtækið uppfylli ekki skilyrði kolvetnislaga um tæknilega né fjárhagslega getu til að takast eitt á við kröfur og skilmála leyfisins eða vera rekstraraðili þess.

Í janúar var greint frá því að kín­verska olíu­fyr­ir­tækið CNOOC og norska olíufélagið Petoro hefðu dregið sig út úr leyfi til olíuvinnslu á svæðinu. Á vefsíðu Orkustofnunar segir að Eykon hafi verið kynnt þessi niðurstaða og hafi félagið farið fram á að fá sérstakan frest til að finna nýja rekstraraðila til samstarfs um olíuleit.

Drekasvæðið.
Drekasvæðið. mbl.is/KG

Orkustofnun segir að það myndi hins vegar brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnsýsluréttarins og ákvæði kolvetnislaga, að veita nýjum aðila forgang að sérleyfi á Drekasvæðinu, án auglýsingar. Hafi Eykon verið gerð grein fyrir því að finni félagið samstarfsaðila eða ef aðrir áhugaaðilar um leit og vinnslu kolvetna á Drekasvæðinu óski eftir sérleyfi muni Orkustofnun ígrunda að birta auglýsingu um skilmála nýrra leyfa á lögformlegan hátt.

Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Eykon Energy.
Gunnlaugur Jónsson, forstjóri Eykon Energy. Sigurgeir Sigurðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK