Breytt eignarhald á Valitor æskilegt

„Margir fjárfestar líta á það sem kost að fyrirtæki séu …
„Margir fjárfestar líta á það sem kost að fyrirtæki séu ekki alþjóðleg heldur njóti sterkrar stöðu á sínum markaði sem þau þekkja vel,“ segir Eva Cederbalk. mbl.is/​Hari

Eva Cederbalk, stjórnarformaður Arion banka, telur að það væri æskilegt fyrir framtíð Valitor að fjölga í eigendahópi eða breyta eignarhaldi með einhverjum hætti.

„Valitor hefur vaxið mikið erlendis á undanförnum árum, m.a. með yfirtöku fyrirtækja, og eru nú um 70% tekna félagsins vegna starfsemi erlendis. Áform eru um frekari vöxt erlendis en slíkt kallar á umtalsverða fjárfestingu sem ekki er án áhættu. Ég myndi telja æskilegt fyrir framtíð þess félags að t.d. fjölga í eigendahópi eða breyta eignarhaldi með einhverjum hætti. Við erum að skoða þessi mál og meta kosti og galla,“ segir Cederbalk í ViðskiptaMogganum í  dag.

Aðalfundur Arion banka fer fram í dag og verður fækkað í stjórn úr átta í sjö þegar fulltrúi Bankasýslunnar fer úr stjórninni. Herdís Dröfn Fjeldsted kemur ný inn í stjórn í stað Þóru Hallgrímsdóttur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK