Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, og Elín Hjálmsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs Eimskips, koma ný inn í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu.
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi samtakanna í dag. Alls bárust sex framboð um almenna stjórnarsetu í stjórn SVÞ en kosið var um þrjú stjórnarsæti fyrir kjörtímabilið 2018 til 2020. Auk Gunnars og Elínar var Jón Ólafur Halldórsson hjá Olís endurkjörinn.
Aðrir í stjórn SVÞ eru Árni Stefánsson hjá Húsasmiðjunni, Gústaf B. Ólafsson hjá Bitter ehf. og Ómar Pálmason hjá Aðalskoðun. Margrét Sanders er formaður Samtaka verslunar og þjónustu og hefur setið sem formaður samtakanna frá árinu 2014 en kosið er um formann til tveggja ára í senn.