Mentís fær viðurkenningu á RB-hlut

Tekist hefur verið á um eignarhlut í Reiknistofu bankanna hf. …
Tekist hefur verið á um eignarhlut í Reiknistofu bankanna hf. sem þjónustar íslenskan fjármálamarkað. Upplýsingatækni mbl.is/Kristinn Magnússon

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði nú í vikunni að eignarréttur Mentís, félags í eigu Gísla K. Heimissonar, að 7,2% hlut í Reiknistofu bankanna (RB), sem félagið keypti af Kviku banka í apríl árið 2016, yrði viðurkenndur.

Tekist hefur verið á um þennan hlut frá því kaupin voru gerð, en fljótlega eftir kaupin lýsti Sparisjóður Höfðhverfinga því yfir að hann hygðist neyta forkaupsréttar samkvæmt ákvæði í samþykktum RB.

Forkaupsréttinn taldi Sparisjóður Höfðhverfinga sig hafa nýtt rúmum hálftíma áður en frestur til að nýta réttinn rann út, en Mentís telur að fresturinn hafi verið liðinn. Mentís vísar til þess að Sparisjóðurinn hafi ekki neytt forkaupsréttar innan 30 daga tímafrests samkvæmt samþykktum félagsins, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK