Undrast launahækkun forstjórans

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er undrun á ákvörðun stjórnar N1 um að hækka laun forstjóra félagsins. Fram kemur að sjóðnum, sem er eigandi 13,3% hlutafjár í N1, hafi ekki verið kunnugt um þessa launahækkun fyrr en upplýsingar birtust í ársreikningi félagsins og í fjölmiðlum.

Bent er á að í starfskjarastefnu N1 hf. komi fram að kjör forstjóra skuli vera samkeppnishæf og taka mið af hæfni, ábyrgð og umfangi starfans. „Lífeyrissjóðurinn telur það orka mjög tvímælis hvort fjárhæð launa forstjóra og hækkun þeirra samræmist þessum viðmiðum og þeim sjónarmiðum sem hluthafastefna sjóðsins byggir á.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK