Bjarnheiður nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar

Bjarnheiður Hallsdóttir, nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.
Bjarnheiður Hallsdóttir, nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Ljósmynd/Aðsend

Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI ehf., var kjörin formaður Samtaka ferðþjónustunnar á aðalfundin samtakanna í dag. 

Þetta staðfestir Skapti Örn Ólafsson, upplýsingafulltrúi Samtaka ferðaþjónustunnar, í samtali við mbl.is. Grím­ur Sæ­mundsen hef­ur gegnt for­mennsku und­an­far­in fjög­ur ár en hann til­kynnti um miðjan fe­brú­ar að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér á aðalfundi. 

Bjarn­heiður Halls­dótt­ir, Þórir Garðars­son, Mar­geir Vil­hjálms­son og Róbert Guðfinnsson sóttust eftir formennskunni en Róbert dró framboð sitt til baka. Niðurstaðan í formannskjörinu í dag var sú að Bjarnheiður fékk 44,72% atkvæða, Þórir 44,62% og Margeir 10,65%. 

Bjarn­heiður Halls­dótt­ir er fram­kvæmda­stjóri ferðaskrif­stof­unn­ar Kötlu DMI. Bjarn­heiður var stunda­kenn­ari við Há­skóla Íslands og eins við Ferðamála­skóla Kópa­vogs auk þess að halda hina ýmsu fyr­ir­lestra varðandi ferðaþjón­ustu. Hún er einnig í for­ystu þess fólks á Skag­an­um sem hef­ur hrundið af stað und­ir­skrifta­söfn­un og öðrum aðgerðum sem mynda eiga þrýst­ing á stjórn­völd að fara í úr­bæt­ur á Vest­ur­lands­vegi á Kjal­ar­nesi. 

Í stjórn samtakanna voru kjörin þau Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé, rekstrarstjóri sölu- og markaðssviðs Kynnisferða, Ívar Ingimarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar Óseyri, Jakob Einar Jakobsson, framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar og Ólöf R. Einarsdóttir, eigandi Mountaineers of Iceland.

Ingi­björg Ólafs­dótt­ir, hót­el­stjóri Radis­son Blu Hót­els Sögu, og Pét­ur Þ. Óskars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­skipta­sviðs Icelanda­ir Group, sitja nú þegar í stjórn SAF, en þau voru kjör­in til tveggja ára á aðal­fundi sam­tak­anna árið 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK