Kaupa mun færri nýja bíla

Bílaleigurnar halda að sér höndum og kaupa færri bíla í …
Bílaleigurnar halda að sér höndum og kaupa færri bíla í ár en undanfarið. mbl.is/Árni Sæberg

Nokkrar af stærstu bílaleigum landsins hyggjast kaupa mun færri nýja bíla inn til landsins í flota sinn á þessu ári en þær gerðu á því síðasta. Þetta staðfesta forsvarsmenn fyrirtækjanna í samtali við ViðskiptaMoggann.

Þannig segir Þorsteinn Þorgeirsson, framkvæmdastjóri bifreiðasviðs Avis, að fyrirtækið muni kaupa 40% minna inn af bílum í ár en í fyrra. Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir að allt stefni í að fyrirtækið kaupi 20% færri nýja bíla inn til landsins í ár en yfir sama tímabil í fyrra. Þá staðfestir Vilborg Anna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Sixt, að samdrátturinn á þeim vettvangi muni að öllum líkindum nema 10-12%.

Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz, segir ekki ljóst hversu mikill samdrátturinn verði á vettvangi fyrirtækisins en það muni ekki síst ráðast af því hversu vel takist til við að selja notaða bíla úr flotanum. Það var aðeins Garðar Sævarsson, rekstrarstjóri Enterprise, sem tjáði blaðinu að fyrirtækið byggist við því að nýliðun í flotanum yrði með svipuðu móti og í fyrra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK