12 koma til greina sem aðstoðarseðlabankastjóri

mbl.is/Ófeigur

Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, og Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, eru á meðal þeirra sem sóttu um starf aðstoðarseðlabankastjóra. 

Embætti aðstoðarseðlabankastjóra var auglýst laust til umsóknar 21. febrúar. og rann umsóknarfrestur út 19. mars. Umsækjendur sem uppfylla menntunarkröfur laga um Seðlabanka Íslands eru:

Daníel Svavarsson hagfræðingur. 
Guðrún Johnsen hagfræðingur. 
Stefán Hjalti Garðarsson, reikni- og fjármálaverkfræðingur. 
Jón Þ. Sigurgeirsson viðskiptafræðingur. 
Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur. 
Ludvik Elíasson hagfræðingur. 
Ólafur Margeirsson hagfræðingur. 
Rannveig Sigurðardóttir hagfræðingur. 
Stefán Jóhann Stefánsson hagfræðingur 
Tryggvi Guðmundsson hagfræðingur. 
Vilhjálmur Bjarnason viðskiptafræðingur. 
Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur. 

Forsætisráðherra mun skipa nefnd til að meta hæfi umsækjenda. Niðurstaða hæfnisnefndar verður ráðgefandi fyrir forsætisráðherra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK