Arðgreiðslur Landsvirkjunar standa í stað

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. mbl.is/​Hari

Á aðalfundi Landsvirkjunar var samþykkt tillaga stjórnar um arðgreiðslu til ríkisins að fjárhæð 1,5 milljarðar króna fyrir árið 2017. Það er sama upphæð og var greidd fyrir árið 2016.

Lands­virkj­un hagnaðist um 11,2 millj­arða króna á síðasta ári en það er tölu­vert meiri hagnaður en árið áður þegar hann nam 6,7 millj­örðum króna. 

Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, gaf út í vor að Lands­virkj­un gæti greitt 110 millj­arða króna í arð til rík­is­ins á ár­un­um 2020 til 2026 þar sem fjár­hags­leg­ur styrk­ur fyr­ir­tæk­is­ins hefði auk­ist á síðustu árum. Arðgreiðslu­get­an væri um tíu til tutt­ugu millj­arðar á ári.

Arðgreiðsla Landsvirkjunar fyrir árið 2016 nam einnig 1,5 milljörðum króna. Í samtali við Ríkisútvarpið fyrir um ári síðan sagði Hörður að Landsvirkjun stefndi að því að auka arðgreiðslur sínar til ríkisins árið 2018. 

Á aðalfundinum, sem haldinn var í dag, skipaði fjármála- og efnahagsráðherra aðalmenn og varamenn í stjórn Landsvirkjunar samkvæmt lögum um fyrirtækið.

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar eru Jónas Þór Guðmundsson, Álfheiður Ingadóttir, Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar eftir aðalfund var Jónas Þór Guðmundsson endurkjörinn formaður stjórnar og Álfheiður Ingadóttir var kjörin varaformaður.

Úr stjórn fóru Haraldur Flosi Tryggvason, Kristín Vala Ragnarsdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir en þau hafa setið í stjórn fyrirtækisins frá árinu 2017. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK