Origo kaupir Benhur

Hákon Sigurhansson framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna Origo
Hákon Sigurhansson framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna Origo Ljósmynd/Aðsend

Origo hefur keypt hugbúnaðarfyrirtækið Benhur sem hefur selt og þjónustað hugbúnað fyrir rannsóknarstofur á heilbrigðissviði frá belgíska fyrirtækinu MIPS í 14 ár.

Benhur varð hluti af Origo frá og með 1. apríl. Þá gekk Skúli Barker, fyrrum eigandi Benhur, til liðs við Origo. Hann mun áfram sinna þjónustu og ráðgjöf fyrir notendur Clims og Cyberlab frá MIPS. Kaupin á Benhur hafa óveruleg áhrif á rekstur og afkomu Origo.

Landspítalinn hefur notað CLIMS rannssóknarstofukerfið og Cyberlab beiðna- og svarakerfi frá MIPS í fjölda ára. Innleiðing á kerfunum stendur einnig yfir á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þá er innleiðing á Erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítalans í undirbúningi.

Í fréttatilkynningu frá Origo segir að markmiðið sé að breikka framboð Origo á heilbrigðissviði sem sem með lausnum og þjónustu til rannsóknastofa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK