WOW flýgur til Delí

mbl.is/WOW-air

WOW air mun hefja áætlunarflug til Delí á Indlandi 6. desember. Sala flugsæta hófst í dag en mikill áhugi er á þessari flugleið frá bæði Bandaríkjunum, Kanada og Indlandi, samkvæmt fréttatilkynningu frá WOW air.

Flogið verður í glænýrri Airbus A330neo vél flugfélagsins fimm sinnum í viku. Flugtíminn til Indlands er 10 og hálfur klukkutími og er þetta lengsta áætlunarflug Íslandssögunnar, segir í tilkynningu.

„Aldrei fyrr hefur verið boðið upp á beint áætlunarflug til Indlands frá Íslandi og það er gaman að geta átt þátt í því að marka tímamót í íslenskri flugsögu. Indland er land mikillar sögu og menningar og það fá farþegar okkar að upplifa á frábærum verðum, í glænýjum flugvélum,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK