Reginn kaupir Höfðatorgsturninn

Með kaupunum eignast Reginn Höfðatorgsturninn og skrifstofuhúsnæðið við Borgartún 8-16 …
Með kaupunum eignast Reginn Höfðatorgsturninn og skrifstofuhúsnæðið við Borgartún 8-16 (hægra megin við Turninn á þessari mynd), auk annarra eigna. mbl.is/Styrmir Kári

Fasteignafélagið FAST-1 og Reginn hafa undirritað kaupsamning vegna kaupa þess síðarnefnda á öllum eignum FAST-1, en meðal þeirra er Höfðatogsturninn, Borgartún 8-16, húsnæði ríkislögreglustjóra að Skúlagötu 21, Skútuvogur 1 og húsnæði Fjársýslu ríkisins að Vegmúla 3. Eigendur FAST-1 eru lífeyrissjóðir, tryggingafélög og aðrir fjárfestar. Greint er frá undirritun kaupsamningsins í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Í vetur var gerður samningur um einkaviðræður vegna fyrirhugaðra kaupa þar sem kom fram að heildarvirði samkomulagsins væri 23,2 milljarðar. Var það sett fram með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og annarra skilyrða. Með hliðsjón af þeim hefur verið ákveðið að lækka verðið um 500 milljónir, eða í rúmar 22,7 milljarða.

Er kaupverðið fjármagnað með útgáfu á nýju hlutafé í Regin, rúmlega 220,5 þúsund hlutum að verðmæti 5,4 milljörðum, lánsfé og yfirtöku áhvílandi skulda. Sölutakmarkanir eru á þriðjungi hlutanna í 4 mánuði frá afhendingardegi og þriðjungi hlutanna í 2 mánuði frá afhendingardegi.

Viðskiptin eru m.a. háð skilyrðum um að hluthafafundur FAST-1 samþykki kaupin, samþykki Samkeppniseftirlitsins og endanlegri fjármögnun kaupanda.

Á meðal stærstu hluthafa FAST-1 eru Gildi-lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður verzlunarmanna með tæplega 20% hlut hver, Festa lífeyrissjóður með tæplega 10% hlut og Almenni lífeyrissjóðurinn með tæplega 7% hlut. Er nýr eignarhlutur þeirra í Regin um 12%.

Fyrir eru nokkrir þessara lífeyrissjóða stórir eigendur í Regin. Lífeyrissjóður verzlunarmanna er með 12,73% og Gildi með 7,11% og eru það stærstu einstöku eigendur félagsins. Þá á LSR 4,57% í Regin fyrir viðskiptin með FAST-1.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK