Fjórir eru sakborningar

Meint brot til skoðunar.
Meint brot til skoðunar. mbl.is/Árni Sæberg

Fjórir menn hafa stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á meintum samkeppnisbrotum Eimskips og Samskipa.

Mennirnir eru Pálmar Óli Ma gnússon, forstjóri Samskipa á Íslandi, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskip Logistics, Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, og Bragi Þór Marinósson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Eimskips, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Ætluð brot þeirra varða við 10. og 11. greinar samkeppnislaga um samráð og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Sá þáttur er varðar samráð er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara og varðar það hvort ólögmætt samráð um verð eða skiptingu markaða hafi átt sér stað. Samkeppniseftirlitið hefur til rannsóknar brot gegn bæði 10. og 11. grein, en Eimskip hefur takmarkaðar upplýsingar um grundvöll stjórnsýslumálsins.

Á vef Kauphallarinnar kemur fram í tilkynningu frá Eimskip að vísað sé til afkomutilkynningar félagsins frá 17. maí sl. en þar er fjallað um málið.

„Þann 10. september 2013 framkvæmdi Samkeppniseftirlitið húsleit á starfsstöðvum Samskipa og Eimskips. Húsleitin var gerð vegna rannsóknar á meintum brotum gegn 10. og 11. gr. samkeppnislaga.

Frá því að húsleitin var gerð hefur Eimskip ítrekað óskað eftir upplýsingum um grundvöll málsins, með takmörkuðum árangri. Félagið hefur sent frá sér fjölda fréttatilkynninga um málið. Ítarleg fréttatilkynning var birt þann 23. október 2014 í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar. 

Þann 11. maí sl., fóru forstjóri og framkvæmdastjóri alþjóðasviðs félagsins til skýrslutöku hjá embætti héraðssaksóknara og fengu báðir stöðu sakbornings þann sama dag. Eins og áður hefur félagið takmarkaðar upplýsingar um grundvöll stjórnsýslumálsins sem varðar ætluð brot gegn 10. gr. og 11. gr. samkeppnislaga, en rannsókn héraðssaksóknara varðar 10. gr. samkeppnislaga og miðar að því hvort ólögmætt samráð um verð eða skiptingu markaða hafi átt sér stað. Framangreindir starfsmenn hafa óskað eftir afriti gagna sem ekki hefur borist. Félagið sjálft hefur ekki fengið gögn í hendur um málið.

Miðað við þær takmörkuðu upplýsingar sem félaginu eru kunnar um sakarefni málsins, hafnar félagið sem fyrr ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Það er von félagsins að rannsókninni fari senn að ljúka og fagnar því, nú næstum fimm árum síðar, að loksins virðist sem skriður sé kominn á rannsókn málsins,“ segir í tilkynningu sem Eimskip sendi frá sér í gærkvöldi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK