Enginn starfsmaður Eimskips verið ákærður

Héraðssaksóknari hefur afhent sakborningum rannsóknargögn vegna meintra brota stjórnenda Eimskips og Samskipa á samkeppnislögum. Lögmenn þeirra eru byrjaðir að fara yfir gögnin að því er segir í tilkynningu Eimskips til kauphallarinnar.

Þar segir að loksins hafi því fengist upplýsingar um megin sakarefnið hvað varðar meint brot gegn 10. grein samkeppnislaga í þeim hluta rannsóknarinnar sem snýr að embætti héraðssaksóknara. Málið snúist um meint brot á tímabilinu 2008-2013 (tekið úr kæru Samkeppniseftirlitsins til héraðssaksóknara):

„Til rannsóknar er ætlað ólögmætt samráð Eimskips og Samskipa, sbr. 10. gr. samkeppnislaga og 53. gr. EES-samningsins. Samráðið er m.a. talið felast í því að sameiginlegur skilningur hafi náðst milli Samskipa og Eimskips um að takmarka flutningaframboð sitt og félögin hafi skipt á milli sín viðskiptavinum með því að gera ekki atlögu að stórum viðskiptavinum hvors annars. Í þessum tilgangi eða af þessu leiddi að komið var á og viðhaldið ástandi (friður) á flutningamarkaðnum þar sem forsendum virkrar samkeppni var raskað og fyrirtækjum gert kleyft að hækka verð til viðskiptavina. Einnig eru vísbendingar að um hafi verið að ræða beint verðsamráð og ólögmæta upplýsingagjöf milli hinna grunuðu fyrirtækja.

Til rannsóknar er hvort tilteknir stjórnendur Eimskips og Samskipa hafi framkvæmt hvatt til eða látið framkvæma umrætt ætlað samráð Eimskips og Samskipa og þannig brotið gegn 41. gr. a samkeppnislaga, sbr. 1. mgr. 42. gr laganna.“

Fram kemur í tilkynningunni að allt frá því að Samkeppniseftirlitið synjaði Eimskip um aðgang að gögnum málsins 13. september 2013 hafi félagið leitað eftir því að fá haldbærar upplýsingar um grundvöll þess.

„Með úrskurði áfrýjunarnefndar í samkeppnismálum í september 2014 var félaginu veittur afar takmarkaður aðgangur að húsleitarheimild og reifun Samkeppniseftirlitsins á málsatvikum, en allt sem máli skipti var afmáð. Hefur félagið tilkynnt um allt sem það þá fékk að vita um málið, m.a. með ítarlegri fréttatilkynningu í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar í október 2014.“

Félaginu hafi ekki borist andmælaskjal frá Samkeppniseftirlitinu vegna málsins sem bendi til þess að málið sé enn ekki fullrannsakað hjá Samkeppniseftirlitinu. „Samkvæmt yfirlýsingum héraðssaksóknara er verið að vinna í málinu og síðan verði að koma í ljós hvað komi út úr því. Félagið fagnar því að sakborningar hafi fengið gögn og að loksins sé sakarefnið varðandi 10. gr. samkeppnislaga komið fram. Enginn starfsmaður félagsins hefur verið ákærður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK