Erum bæði nógu stór og nógu lítil

Ægir Már Þórisson og Gestur Gestsson.
Ægir Már Þórisson og Gestur Gestsson. mbl.is/Valli

Sex ár eru liðin síðan upplýsingatæknifyrirtækið Advania varð til með sameiningu Skýrr hf., HugurAx, Kerfi í Svíþjóð og Hands í Noregi. Rekstur Advania á Íslandi hefur aldrei gengið betur að sögn Ægis Más Þórissonar forstjóra og 11% tekjuvöxtur síðasta árs heldur áfram af krafti á þessu ári. Rekstur móðurfyrirtækisins er einnig í vexti undir stjórn forstjórans Gests G. Gestssonar, enda gengur rekstur Advania vel í Svíþjóð og Noregi. Þar hyggst félagið vaxa enn frekar og skjóta rótum í Finnlandi og Danmörku.

Það var sérlega ánægjulegt fyrir blaðamann ViðskiptaMoggans að fá tækifæri til að hitta og ræða við tvo Advania-forstjóra samtímis í höfuðstöðvum Advania á Íslandi í Guðrúnartúni nú á dögunum. Þeir eru ekki ólíkir í viðkynningu, hávaxnir báðir tveir, léttir í skapi og viðkunnanlegir. Ægir stýrir 600 manna starfsliði Advania á Íslandi, en Gestur, sem er fyrrverandi forstjóri Advania á Íslandi, stýrir nú samstæðu Advania AB, með höfuðstöðvar í Svíþjóð. Alls starfa 1.250 manns hjá þeim félögum sem mynda Advania-samsteypuna og veltan á síðasta ári nam um 35 milljörðum króna. Íslenski hlutinn velti 12,6 milljörðum króna og óx um 11% milli ára. Ör vöxtur félagsins hérlendis hefur haldið áfram á þessu ári, þar sem tekjur á fyrsta ársfjórðungi voru 23% hærri en á sama tímabili í fyrra.

Advania á rætur að rekja aftur til ársins 1939 þegar Einar J. Skúlason stofnaði viðgerðarþjónustu fyrir skrifstofubúnað í Reykjavík, en eins og flestum þeim sem fylgjast með íslensku atvinnulífi ætti að vera í fersku minni varð Advania til í núverandi mynd árið 2012. Ráðist var í mikla vinnu samhliða stofnuninni, með tilheyrandi nafnabreytingu, nýju markaðsefni og nýrri ásýnd hvarvetna. Markmiðið var að sameina undir einum fána starfsfólk úr mörgum ólíkum upplýsingatæknifélögum og skapa fyrirtækjamenningu sem höfðaði til allra. Að sögn Ægis Más tókst sú vinna afar vel, því þótt verkefnið hafi verið krefjandi var vegferðin bæði lærdómsrík og skemmtileg.

Nær hvert mannsbarn á Íslandi þekkir nú vörumerkið Advania og veit að þar er leiðandi upplýsingatæknifyrirtæki á innlendum markaði. Færri þekkja til starfseminnar erlendis, þar sem áherslur í rekstrinum eru ólíkar og taka mið af viðkomandi markaði. Gestur segir að tekjulega sé Advania Svíþjóð stærsta félagið innan samstæðunnar, Advania Ísland komi næst, þá Advania Noregi en umfang starfseminnar sé minnst í Danmörku, enn sem komið er. Félagið á eftir að nema land í Finnlandi, en viðbúið er að það breytist á næstu árum enda er langtímamarkmiðið að fyrirtækið bjóði upp á sömu gæðaþjónustuna alls staðar á Norðurlöndunum. „Hér á Íslandi geturðu beðið leigubílstjóra að keyra þig niður í Advania og hann veit umsvifalaust hvert skal halda. Það er ekki raunin í Svíþjóð enn sem komið er, en þótt vörumerkið sé ekki orðið jafn þekkt þar, þá erum við farin að vekja athygli,“ segir Gestur og Ægir tekur undir.

Fjögur risafyrirtæki

Á Norðurlöndunum keppir Advania m.a. við fjögur risafyrirtæki, sem veita þjónustu og ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. Gestur segir árstekjur þeirra hlaupa á 10 til 20 milljörðum sænskra króna (120-240 milljarðar íslenskra króna) og starfsmennina vera hátt í 20 þúsund talsins. „Í stærð þeirra felast mörg tækifæri fyrir okkur, enda erum við um margt ólík okkar keppinautum. Við erum nógu stór til að geta þjónustað viðskiptavininn vel og við erum nógu lítil til að geta þjónustað viðskiptavininn vel. Við erum í góðri stöðu til að vinna þétt með okkar viðskiptavinum og ætlum að varðveita þá sérstöðu. Það er gott að stækka, en það er fín lína á milli þess að vera lipur og að verða að bákni.

Það má segja að markaðurinn á Norðurlöndunum sé þrískiptur. Á eftir risunum fjórum koma þónokkur fyrirtæki á stærð við okkur og þar á eftir fjöldinn allur af smærri fyrirtækjum. Ég trúi því að þeim eigi eftir að fækka mikið á næstu árum, þar sem sameiningar og samþjöppun á markaðnum verða að teljast líklegar,“ segir Gestur.

Ægir Már segir að upplýsingatæknin verði sífellt fyrirferðarmeiri í rekstri fyrirtækja almennt, og það sé meðal annars ástæðan fyrir miklum vexti Advania á Íslandi á síðasta ári. EBITDA félagsins nam þá 1.150 milljónum króna og jókst um 15% frá fyrra ári. EBITDA-hlutfall félagsins á árinu 2017 var 9,1% og hækkaði um 0,4% á milli ára. Hagnaður félagsins hækkaði um 20% á milli ára og nam 420 milljónum króna.

„Það er skilgreind stefna okkar að vera brú á milli fyrirtækjanna og upplýsingatækninnar. Við tengjum fyrirtækin við allt það sem upplýsingatæknin hefur að bjóða, og sinnum þörfum atvinnulífsins fyrir upplýsingatækni. Þetta snýst um að mæta þörfum,“ útskýrir Ægir Már, og heldur áfram: „Skilvirk og markviss notkun á upplýsingatækni er lykillinn að árangri. Þetta á við á öllum sviðum; í bönkum, fjarskiptum, sjávarútvegi, framleiðslu og þjónustu af ýmsu tagi, svo einhverjir geirar séu nefndir. Þetta kallar á aðra hugsun. Áður hugsuðu stjórnendur um upplýsingatækni til að spara peninga, en í dag snýst hún um að ná betri árangri, minnka sóun, auka framleiðni o.s.frv. Það kallar á að fyrirtæki eigi samstarfsaðila eins og okkur, sem virkilega leggja sig fram við að finna þær lausnir sem henta hverju sinni, sníða að þörfum viðskiptavina og sjá um rekstur þeirra. Þessi upplýsingatækniþjónustumarkaður hefur vaxið mikið síðustu ár, og hlutverk hans er orðið mikilvægara en það hefur nokkurn tímann verið. Upplýsingatækni er orðinn kjarninn í samkeppnisforskotinu sem fyrirtæki vilja ná.“

Sænsk fyrirmynd

Gestur tekur undir þetta og segir þessa þjónustu vera það sem knýi áfram tekjuvöxt félagsins, bæði hér heima og erlendis. Fyrirtækin feli Advania allsherjarumsýslu tæknimálanna, og geti þannig einbeitt sér að eigin rekstri. „Líklega erum við lengst komin með þetta í Svíþjóð, en samstarf milli félaga innan samstæðunnar hefur verið mikið og mikil þekking hefur færst milli svæða. Þannig læra félögin hvert af öðru og ná betri árangri fyrir vikið. Annars er markaðurinn í Skandinavíu töluvert á undan Íslandi hvað þetta verðar. Þar eru fyrirtæki búin að reka sig á ýmsar hindranir og læra af þeim. Svíarnir eru mjög reyndir á þessu sviði, vita hvernig á að stilla upp samstarfssamningum við fyrirtæki og stofnanir svo allir sjái hag í nánu samstarfi. Við höfum svo fært þekkinguna heim til Íslands og árangurinn hefur ekki látið á sér standa,“ segir Gestur.

Miðað við þrettán milljarða tekjur Advania á Íslandi og hraðan vöxt er ekki úr vegi að spyrja hvort samkeppnin sé einhver að ráði hér á landi. „Já, hér er hörð samkeppni, bæði um viðskiptavini og vinnuafl,“ segir Ægir Már. „Við höfum vaxið af því að við erum breitt fyrirtæki, sem býður upp á margs konar lausnir. Á öllum sviðum keppa margir um viðskiptavini og starfsfólk og verðnæmi á markaðnum er mikið. Þá má ekki gleyma því að í dag er samkeppnin líka alþjóðleg. Það er löngu liðin tíð að viðskiptavinir leiti eingöngu beint til íslenskra fyrirtækja. Í stærri og flóknari verkefnum leita þeir oft til erlendra aðila, og í smærri verkefnum geta þeir stundum sjálfir fundið skýjalausnir. Þessi bransi er engan veginn bundinn af landamærum eða tungumálum,“ segir Ægir.

Spurður nánar um hvernig er að stýra upplýsingatæknifyrirtæki á Norðurlöndunum í dag segir Gestur sömu lögmálin gilda alls staðar. Að þekkja viðskiptavininn vel og ná að hjálpa honum að skapa verðmæti. „Þess vegna er starfsemin í móðurfélaginu mjög lítil og telur fjóra starfsmenn. Ákvarðanatakan og valdið verður að vera í löndunum sjálfum og nálægt viðskiptavininum.“

Gestur segist njóta þeirra forréttinda að vera með gríðarlega öflugt stjórnendateymi í hverju landi. „Stjórnendateymið hér á Íslandi hefur til dæmis náð frábærum árangri á erfiðum markaði. Það er ekki sjálfgefið að vera í þeirri stöðu sem Advania er í á íslenska markaðnum, hvað þá að ná að vaxa og auka arðsemi á sama tíma.“

Hann segir sama stjórnskipulag vera við lýði á öllum starfssvæðum Advania, sem sé skilvirkt og gott. Hans hlutverk sé því fyrst og fremst að samræma stefnur og aðgerðir milli landa og sjá til þess að þekking flæði á milli þeirra. „Það er mitt hlutverk að horfa fram á við, koma auga á vaxtartækifæri og skoða þau í samstarfi við stjórn og stjórnendur í hverju landi fyrir sig. Við búum vel að því að hafa í stjórninni fólk sem starfað hefur í upplýsingatæknigeiranum. Það skiptir gríðarlegu miklu máli,“ segir Gestur.

Stjórn félagsins er skipuð þeim Thomas Ivarson sem er formaður, Bengt Engström, Katrínu Olgu Jóhannesdóttur og Birgittu Stymne Göransson.

Advania er 12 mismunandi félög

„Grunnurinn að velgengni Advania byggist á góðum innri vexti og strategískum kaupum á fyrirtækjum sem falla vel að okkar stefnu og menningu. Á því sviði njótum við góðs af mikilli reynslu og þekkingu og alls hafa í dag verið sameinuð undir nafni Advania 12 upplýsingatæknifélög.“ Aðspurður segir Gestur að við skoðun á félögum til kaups sé horft til þeirrar kunnáttu og sérfræðiþekkingar sem búi í viðkomandi félagi. „Það er til dæmis mikil eftirspurn eftir sérfræðiþekkingu í upplýsingaöryggi. Þá er einnig alltaf þörf á góðu starfsfólki og færum stjórnendum. Við erum ekki að kaupa veltu eða viðskiptavild þegar við kaupum félög heldur þekkingu, samlegð og reynslu. Árangurinn sannar það að við höfum verið að velja réttu félögin.“

Ég spyr Gest nánar um hvernig fyrirtækið komi til með að vaxa á næstu árum. Hann segir að félagið eigi að vera eitt norrænt fyrirtæki, og vera nægilega stórt í hverju landi til að hafa breiddina til að geta boðið upp á þessa alþjónustu í upplýsingatækni sem hjálpar viðskiptavinum að ná samkeppnisforskoti. „Þú þarft að ná upp í ákveðna stærð til að geta þjónustað á breiddina. Það er það sem kallar á stækkun á hverjum markaði. Í dag erum við komin á þann stað á Íslandi og í Svíþjóð, en ekki í hinum löndunum.“

Hann segir að það sé yfirlýst stefna félagsins að bjóða upp á sömu þjónustu alls staðar á Norðurlöndunum. „En hvernig það spilast út í tímaásnum er erfitt að segja. Þú vilt frekar sleppa því að kaupa en að kaupa vitlaust.“

Advania hefur lýst því yfir að félagið sé rekið eins og það væri skráð á hlutabréfamarkað. Í raun er félagið tilbúið til skráningar, þegar og ef eigendur ákveða að fara þá leið.

Af orðum Gests má ráða að eigendur félagsins séu ekkert að flýta sér í þeim efnum. Félagið vaxi góðum innri vexti og framlegð og tekjur vaxi sömuleiðis ár frá ári. En fari svo að félagið verði skráð verði það eingöngu á sænska markaðnum. „Í heimi engra gjaldeyrishafta er óþarfi að skrá fyrirtækið bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Við munum hins vegar sinna fjárfestum á Íslandi vel ef af þessu verður, kynna fyrir þeim félagið okkar og bjóða þeim að vera með.“

Breytingar til langs tíma vanmetnar

Upplýsingatæknin er á ferð og flugi að vanda og ótal tækifæri út um allt að sögn þeirra Ægis og Gests. „Maður ofmetur gjarnan breytingarnar sem verða á næstu tveimur árum, en vanmetur breytingarnar sem verða á næstu 10 árum. Til skemmri tíma breytist minna en til lengri tíma breytist meira.“

Meðal þeirra tækifæra sem þeir Gestur og Ægir sjá er þróun í sjálfsafgreiðslu í verslunum, sem er rétt að byrja á Íslandi, en er langt komin í nágrannalöndunum. Þá séu ófá handtökin eftir í að stytta rafræna ferla bæði í atvinnulífinu og í stjórnsýslu hins opinbera. Þar sé mikið verk óunnið, en Advania sé tilbúið til að hjálpa fyrirtækjum og stofnunum á þeirri vegferð.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK