Hefja beint flug til Rómar

Boeing 787 Draumfari Norwegian.
Boeing 787 Draumfari Norwegian. Ljósmynd/Norwegian

Norska lággjaldaflugfélagið Norwegian mun í lok október hefja beint áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli til Rómar á Ítalíu. 

Þetta staðfestir fulltrúi Norwegian í samtali við fréttavefinn Túrista. „Við trúum því að þessari flugleið verði vel tekið af Íslendingum og Ítölum,” segir Astrid Mannion-Gibson í samtali við Túrista.

Í fréttinni segir að flogið verði beint á milli Keflavíkurflugvallar og Rómar alla fimmtudaga og sunnudaga. Þotur flugfélagsins taki á loft rétt fyrir hádegi en frá Róm sé flogið klukkan sjö að morgni. Ódýrustu fargjöldin kosta ellefu þúsund krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK