Sandra Hlíf nýr framkvæmdastjóri hjá Eik

Sandra Hlíf Ocares.
Sandra Hlíf Ocares. Ljósmynd/Aðsend

Sandra Hlíf Ocares hefur verið ráðin í nýtt starf framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar Eikar fasteignafélags hf. Viðskiptaþróun mun sjá um nýja tekjuöflun með það að markmiði að nýta betur það sem eignasafnið hefur upp á að bjóða. Sandra lauk BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2007 og mag.jur-gráðu frá sama skóla árið 2009.

Sandra gegndi starfi kosningastjóra fyrir sveitarstjórnarkosningar árið 2018, starfaði sem sjálfstætt starfandi lögmaður árið 2017 og árin 2011-2013, var yfirlögfræðingur Plain Vanilla á árunum 2013-2017. Þá var hún formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur árin 2010-2013 og framkvæmdastjóri þjónustusviðs Alterna 2010-2011.

Sandra hefur gegnt ýmsum stjórnarstörfum og starfar nú sem varaformaður stjórnar ÍV sjóða. Þá var hún varamaður í stjórn Vátryggingafélags Íslands á árinu 2017, sat í stjórn Icelandic Gaming Industry á árunum 2015-2016 og sat í ritstjórn Tímarits Lögréttu árin 2003-2004.

Sandra hefur yfirgripsmikla og hagnýta reynslu á sviði stjórnunar, samningagerðar, nýsköpunar og stafrænnar þróunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK