Icelandair lækkar afkomuspá sína

Þrátt fyrir lækkun afkomuspár kemur fram að til lengri tíma …
Þrátt fyrir lækkun afkomuspár kemur fram að til lengri tíma séu horfur í rekstri Icelandair Group góðar. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Icelandair Group lækkar afkomuspá sína fyrir árið 2018 en núverandi horfur í rekstri á árinu eru lakari en félagið hafði gert ráð fyrir. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group til Kauphallarinnar. Þar segir að miðað við fyrirbyggjandi forsendur áætli fyrirtækið að afkoma þess verði 120 til 140 milljónir bandaríkjadala á árinu, 13 til 15 milljarðar íslenskra króna.

Þrátt fyrir að uppgjöri sé ekki lokið er ljóst að afkoma annars ársfjórðungs verður lakari en áður hafði verið áætlað,“ kemur fram í tilkynningunni en ástæður þess eru sagðar rask í flugáætlun Icelandair undanfarnar vikur, seinkun á innleiðingu flugvéla og slæmt veður. Auk þess hafi tekjur tapast.

Félagið hefur greint forsendur afkomuspár fyrir síðari hluta ársins en í tilkynningunni kemur fram að spár um hækkandi meðalverð á síðasti hluta árs hafi hingað til ekki gengið eftir. „Þetta gerist þrátt fyrir að olíuverð hafi hækkað um 50% á seinustu 12 mánuðum. Af þeirri ástæðu hefur félagið ákveðið að lækka tekjuspá félagsins fyrir síðari hluta ársins,“ kemur þar fram.

Töluverðar afbókanir hafa verið hjá hópum hjá Iceland Travel vegna minnkandi samkeppnishæfni Íslands sem mun valda lakari afkomu í þeim rekstri á þessu ári. Þá hefur mikil framboðsaukning yfir Atlantshafið á nokkrum lykilmörkuðum félagsins haft áhrif á verðþróun á háönn,“ segir í tilkynningunni en sagt er að til lengri tíma séu horfir í rekstri félagsins góðar.

Sú staða sem við erum að horfa upp á núna er okkur talsverð vonbrigði. Sú þróun meðalverða sem við gerðum ráð fyrir á síðari hluta ársins virðist ekki vera að ganga eftir og því lækkum við tekjuspá félagsins,“ lætur Björgólfur Jóhannesson, forstjóri Icelandair Group, hafa eftir sér.

„Árið 2018 er ár mikilla breytinga og fjárfestinga sem gera félaginu kleift að vaxa og dafna,“ segir forstjórinn enn fremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK