Dregur úr árshækkun launa

Sé litið á tímabilið frá janúar 2015 til maí 2018 …
Sé litið á tímabilið frá janúar 2015 til maí 2018 má sjá að launavísitalan hefur hækkað töluvert umfram samningsbundnar hækkanir sem sýnir að launakostnaður fyrirtækjanna hefur hækkað meira en samið var um í heildarkjarasamningi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Launavísitalan hækkaði um 2,3% milli apríl og maí, en hefur þrátt fyrir það lækkað nokkuð á ársgrundvelli. „Hækkunartaktur“ launa á ársgrundvelli hefur verið nokkuð stöðugur í rúmlega 7% í um það bil ár en lækkar nú niður í 6,3%. Meginskýring lækkunar á ársbreytingu vísitölunnar eru minni launabreytingar í maí í ár en í fyrra, en áfangahækkanir í almennum kjarasamningum voru í maí bæði í ár og í fyrra.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Stóru breytingarnar á launavísitölunni koma að mestu leyti fram í sama mánuði og áfangahækkanir stóru kjarasamninganna verða, segir í Hagsjánni. Hækkunin varð veruleg í febrúar 2015 og í mánuðina þar á eftir við upphaf kjarasamninga, svo eilítið minni í fyrra og talsvert minni nú. Fyrir utan þessar stóru áfangahækkanir hefur launavísitalan að jafnaði hækkað um 0,4% á mánuði sem skýrist af samningsbundum hækkunum annarra hópa og launaskriði.

Kaupmáttur stöðugur

Verulega hafði hægt á aukningu kaupmáttar launa frá því sem mest var og hefur kaupmáttur verið nokkuð stöðugur frá því um mitt ár 2017. Þar sem verðlag lækkaði milli apríl og maí tók kaupmáttur stökk upp á við nú í maí og jókst um 2,4% milli mánaða. Kaupmáttur var 4,2% meiri í nú í maí en hann var fyrir ári. Frá áramótunum 2014/2015 hefur kaupmáttur launavísitölu aukist um rúm 24% eða tæplega 7% á ári. Það er verulega mikil aukning, bæði sögulega séð og í samanburði við önnur lönd.

Sé litið á tímabilið frá janúar 2015 til maí 2018 má sjá að launavísitalan hefur hækkað töluvert umfram samningsbundnar hækkanir sem sýnir að launakostnaður fyrirtækjanna hefur hækkað meira en samið var um í heildarkjarasamningi. „Það passar auðvitað vel við hagsveifluna á þessum tíma og þýðir að staðbundnir samningar og hreint launaskrið hafa hækkað launin umfram það sem gert var ráð fyrir,“ segir í Hagsjá Landsbankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK