Guðmundur fer líka úr stjórn Brims

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda.
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, hefur sagt sig úr stjórn Brims. Þetta staðfestir hann í samtali við mbl.is. Guðmundur vildi ekki tjá sig um úrsögnina að öðru leyti en að hann hefði sagt sig úr stjórninni um svipað leyti og hann sagði sig úr stjórn HB Granda.

Í samtali við mbl.is segir Guðmundur að hann hefði tilkynnt stjórninni um úrsögn sína í HB Granda sl. fimmtudag og í kjölfarið hafi verið boðað til hluthafafundar sem fer fram föstudaginn 27. júlí. Á dagskrá er kjör tveggja stjórnarmanna.

Í apríl keypti Guðmundur 34,1 prósenta eignarhlut í HB Granda af Kristjáni Loftssyni og Halldóri Teitssyni. Við það stofnaðist til yfirtökuskyldu og eignaðist Guðmundur að lokum 37,96 prósent í félaginu.

Um miðjan júní var Guðmundur Kristjánsson ráðinn forstjóri HB Granda og samið var við Vilhjálm Vilhjálmsson um starfslok. Rannveig Rist sagði sig í kjölfarið úr stjórninni og gagnrýndi uppsögn forstjórans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK