Hlutabréf í Icelandair hrynja

Hlutabréf í Icelandair hafa hrunið um rúmlega 24 prósent í morgun en félagið lækkaði í morgun afkomuspá sína fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Nýja afkomuspáin er um 30 prósent lægri en fyrri spá.

Í 220 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni, NASDAQ OMX Iceland, í dag hafa bréf í félaginu lækkað um 24,41 prósent, eða niður í 9,60 á hlut. Gengi hluta í félaginu hefur ekki verið lægra síðan í febrúar 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK