Enn stefnt á sólarkísilverksmiðju

Hvíti ramminn á myndinni sýnir lóðina á Grundartanga þar sem …
Hvíti ramminn á myndinni sýnir lóðina á Grundartanga þar sem til stóð að Silicor Materials reisti sólarkísilverksmiðju.

Enn er stefnt að því að reisa sólarkísilver hér á landi. Sunnuvellir, sem stofnað var í kringum fjárfestingu íslenskra lífeyrissjóða og fjárfesta í uppbyggingu á sólarkísilverksmiðju Silicor Materials á Grundartanga, nýttu söluréttarákvæði til að tryggja rétt sinn gagnvart bandaríska móðurfélaginu. 

Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að Ómar Örn Tryggvason, stjórnarformaður Sunnuvalla, telji fjárfestinguna ekki tapað fé þó að fallið hafi verið frá áformum um sólarkísilver á Grundartanga á sínum tíma. 

Síðasta haust féll Silicor Mater­ials frá samn­ing­um við Faxa­flóa­hafn­ir um lóð og hafn­araðstöðu á Grundartanga. Þá sagði Michael Rus­so, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­tali við Morg­un­blaðið að ákveðið hafi verið að hægja á und­ir­bún­ingn­um og að fjár­mögn­un verk­efn­is­ins hef­ði verið tek­in til end­ur­skoðunar.

 „Við þurft­um að taka eitt eða tvö skref til baka og end­ur­meta stöðuna en við höf­um full­an hug á að halda verk­efn­inu áfram, því hef­ur ekki verið hætt,“ seg­ir Rus­so um fjár­mögn­un­ina í Morg­un­blaðinu í dag, en erfiðara reynd­ist að fjár­magna verk­efnið en Silicor Mater­ials taldi í fyrstu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK