Strætó fær fimm nýja rafvagna

Á síðasta ári festi Strætó kaup á 14 rafvögnum frá …
Á síðasta ári festi Strætó kaup á 14 rafvögnum frá kínverska framleiðandanum Yutong. Fimm koma til landsins í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fimm nýir rafvagnar Strætó eru væntanlegir til landsins í dag og búast má við því að þeir verði komnir í akstur um miðjan ágúst.

Á síðasta ári festi Strætó kaup á 14 rafvögnum frá kínverska framleiðandanum Yutong. Fyrstu fjórir vagnarnir komu til landsins í mars á þessu ári, næstu fimm koma í dag og áætlað er að síðustu fimm vagnarnir komi í vetur, að því er segir í tilkynningu frá Strætó.

Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó.
Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. Ljósmynd/Aðsend

Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir í tilkynningunni að nýju vagnarnir hafi reynst afar vel fram til þessa.

„Þetta var stórt stökk fyrir okkur og að miklu að huga þegar við fengum fyrstu rafvagnana. Við komum upp nýjum hleðslustöðvum, það þurfti að þjálfa starfsfólkið okkar og síðan þurftum við að prófa bílana á mismunandi leiðum. Í heild hefur þetta gengið afar vel og flestir virðast afar ánægðir með nýju og hljóðlátu vagnana okkar,“ er haft eftir Jóhannesi.

Þá kemur fram aðh ingað til hafi ekki verið mögulegt að hafa rafvagnana í akstri yfir heilan dag en Jóhannes segir að það muni  breytast þegar nýrri hleðslustöð verður komið fyrir á einhverri af stóru skiptistöðvunum.

„Eins og staðan er núna  eru rafvagnarnir að aka á tvískiptum vöktum. Þeir aka á morgnana til ca. 10.00 og fara síðan í hleðslu á höfuðstöðvum okkar á Hesthálsi. Þeir eru síðan aftur sendir út um 14.00 leytið og eru að keyra fram á kvöld. Við eigum von á nýrri hleðslustöð síðar á þessu ári og við erum enn að meta það hvar henni verður komið fyrir. Eins og staðan er núna, er líklegast að hún verði sett í Mjóddina eða í Spöng,“ segir Jóhannes ennfremur í tilkynningunni.

Rafvagnar Strætó.
Rafvagnar Strætó. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK