Gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum í júní síðastliðnum voru 1.188.600, en þær voru 1.195.000 í sama mánuði árið áður. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 589.200, gistinætur á öðrum tegundum gististaða (svo sem farfuglaheimilum, svefnpokaplássi og tjaldsvæðum) voru 408.600, og 190.800 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Þar segir jafnframt, að til viðbótar hafi gistinætur erlendra ferðamanna utan hefðbundinna gististaða verið áætlaðar 55.400 í júní. Þar af hafi verið 26.600 í bílum utan tjaldsvæða og 28.800 hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða á öðrum stöðum þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 4% í júní
Gistinætur á hótelum í júní síðastliðnum voru 410.800, sem er 4% aukning frá sama mánuði árið áður. Um 54% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 221.300.
Um 90% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn eða 369.100. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (131.200), síðan Þjóðverjar (43.900) og Bretar (31.300), en gistinætur Íslendinga voru 41.600.
78% nýting herbergja á hótelum í júní
Herbergjanýting í júní 2018 var 77,7%, sem er lækkun um 3,2 prósentustig frá júní 2017 þegar hún var 80,9%. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 5,5% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í júní var best á Suðurnesjum, eða 84,7%.