Bannað að nota auðkennið Iceland Highligts

Iceland Highlights Travel skipuleggur m.a. ferðir fyrir erlenda ferðamenn á …
Iceland Highlights Travel skipuleggur m.a. ferðir fyrir erlenda ferðamenn á Íslandi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Neytendastofa hefur bannað  Iceland Highlights Travel notkun auðkennisins, lénanna icelandhighlights.is og icelandhighlights.com. Enn fremur var félaginu gert að afskrá heitið Iceland Highlights Travel ehf. í firmaskrá Ríkisskattstjóra ásamt því að afskrá lénið hjá ISNIC-lénaskrá.

<a href="https://www.neytendastofa.is/um-okkur/frettir-og-tilkynningar/frett/2018/08/02/Audkennid-Iceland-Highlights/" target="_blank">Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.</a>

Fram kemur, að Neytendastofu hafi borist erindi M&amp;T Investment ehf. þar sem kvartað var yfir notkun Iceland Highlights Travel ehf. á auðkenninu Iceland Highlights. M&amp;T Investment vísaði m.a. til þess að einn stofnandi M&amp;T Investment hafi skráð lénið iceland-highlights.com 9. nóvember 2015. Sótt hafi verið um skráningu vörumerkisins Iceland Higlights 4. júlí 2017 sem orð- og myndmerki. Taldi M&amp;T Investment að notkun Iceland Highlights Travel á auðkenninu væri til þess fallin að valda ruglingi milli fyrirtækjanna.

Þá segir, að Iceland Highlights Travel hafi mótmælt öllum fullyrðingum M&amp;T Investment um að félagið hafi öðlast nokkurn vörumerkjarétt yfir auðkenninu Iceland Highlights, hvort sem er á grundvelli notkunar eða vegna skráningar framangreinds vörumerkis. Vísaði Iceland Highlights Travel m.a. til þess að félagið hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá í október 2016. Taldi Iceland Highlights Travel að M&amp;T Investment hafi ekki lagt fram nein gögn sem stutt hafi fyrri notkun félagsins á auðkenninu.

Neytendastofa taldi m.a. með vísun til þess að bókunarþjónustan Iceland Highlights, á kennitölu eins stofnanda M&amp;T Investment, hafi notað auðkennið Iceland Highlights við sölu á ferðaþjónustu a.m.k. frá 16. mars 2016 að félagið hafi einkarétt til auðkennisins. Iceland Highlights Travel var því bönnuð notkun auðkennisins, lénanna icelandhighlights.is og icelandhighlights.com. Enn fremur var félaginu gert að afskrá heitið Iceland Highlights Travel ehf. í firmaskrá Ríkisskattstjóra ásamt því að afskrá lénið hjá ISNIC-lénaskrá.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK