Atlantia fellur hratt í Mílanó

Hlutabréf í Atlantia, sem rekur A10-hraðbrautina þar sem brúin hrundi í nágrenni Genúa á Norður-Ítalíu, hafa lækkað um 24% í dag. Lokað var fyrir viðskipti með félagið í klukkustund í morgun. Þegar viðskipti hófust að nýju hrundu þau bókstaflega í verði.

Helsta eign Atlantia er Autostrade per l'Italia, sem rekur A10-hraðbrautina. Að minnsta kosti 39 létust eftir að hluti brúarinnar hrundi í fyrradag.

Slysið varð þegar hellirigning var í borginni og er m.a. verið að rannsaka hvort eldingar hafi orsakað hrun brúarinnar.

Um 280 metra langur hluti úr dalbrúnni féll um 45 metra á byggingar og lestarteina þar fyrir neðan, og féll fjöldi bíla og fólks með.

Brúin er kennd við verkfræðinginn Riccardo Morandi sem lést árið 1989 en hefur á síðustu árum sætt gagnrýni, m.a. vegna merkja um vandamál í brúm eftir hann. Á þriðjudag lækkuðu hlutabréf félagsins um 5,4% en kauphöllin í Mílanó var lokuð í gær vegna almenns frídags á Ítalíu.

Ítölsk stjórnvöld íhuga að afturkalla rekstrarleyfi Autostrade á hraðbrautinni. Aðstoðarforsætisráðherra Ítalíu, Luigi Di Maio, sagði í gær að hægt hefði verið að afstýra slysinu og ljóst væri að ábyrgðin væri Autostrade per l'Italia. Yfirvöld munu sekta fyrirtækið um 150 milljónir evra og jafnvel afturkalla sérleyfi þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK