Flestir leigja af einstaklingum

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Einstaklingar eru um 57% leigusala, fyrirtæki 41% og fjármálastofnanir 2%. Þetta kemur fram í upplýsingum sem Þjóðskrá Íslands birti nýverið um leigumarkaðinn á landsvísu þar sem meðal annars kemur fram hverjir eru leigusalar. Gögnin ná þó ekki til allra leigusamninga, segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Úrvinnsla Þjóðskrár fyrir árið 2018 byggir á 5.622 leigusamningum sem þinglýst var á tímabilinu 30. júní 2017 til og með 31. júlí 2018. Ekki voru teknir með leigusamningar þar sem herbergjafjöldi íbúða er óþekktur og heldur ekki samningar um félagslegar íbúðir. Einnig var samningum sleppt þar sem einungis hluti íbúðar var í útleigu.

„Greiningin gefur góða vísbendingu um stöðu leigumarkaðarins og þróun þess [sic] í gegnum tíðina. Við sjáum að fyrirtæki hafa aukið hlutdeild sína á sama tíma og hlutdeild fjármálastofnana og einstaklinga hefur dregist saman. Einstaklingar eru þó enn þá algengasti leigusalinn.

Fyrir 6 árum síðan voru einstaklingar með 74% hlut, og fyrirtæki og fjármálastofnanir með um fjórðungs hlut. Nú eru einstaklingar um 60% leigusala samkvæmt greiningunni og fyrirtæki um 40%. Fjármálastofnanir eru með hverfandi hlutdeild. Hafa verður þó í huga að ekki eru allir leigusamningar undir heldur einungis þeir sem eru þinglýstir og uppfylla áðurnefndar kröfur,“ segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

Í síðustu mánaðarskýrslu sjóðsins kom fram að hlutdeild fyrirtækja meðal kaupenda fer minnkandi og er það að einhverju leyti í takt við þessa greiningu sem sýnir að fyrirtæki eru ekki að auka við hlutdeild sína sem leigusalar.

Íbúðakaupum á vegum fyrirtækja fjölgaði mjög á seinni hluta árs 2012, sérstaklega í Reykjavík vestan Kringlumýrarbrautar. Á árunum 2013 – 2017 stóðu fyrirtæki að baki 17% allra íbúðakaupa á því svæði að jafnaði en á fyrri hluta yfirstandandi árs var þetta hlutfall næstum helmingi minna eða um 10%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK