Útsala á fargjöldum hjá WOW air

Útsalan á að hefjast á morgun.
Útsalan á að hefjast á morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Flugfélagið WOW air ætlar að efna til útsölu á öllum áfangastöðum sínum og verður allt að 40% afsláttur af völdum flugferðum.

Breska blaðið Mirror greinir frá þessu.

Rekstr­artap (EBIT) WOW air nam um 45 millj­ón­um Banda­ríkja­dala, jafn­gildi 4,8 millj­arða ís­lenskra króna, á tólf mánaða tíma­bili frá júlí 2017 til júní 2018, að því er kom fram í fjár­festa­kynn­ingu.

Á meðal áfangastaða sem um ræðir í tilboðinu eru Detroit, Cleveland, Cincinatti, St. Louis og Dallas.

Flugferðirnar verða farnar dagana 27. ágúst til 15. desember. 

Tilboðið gildir aftur á móti frá 23. ágúst til 27. ágúst.

Viðskiptavinir þurfa að setja inn kóðann WOWSALE þegar þeir bóka á netinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK