Kjarnafæði og Norðlenska í eina sæng

Tekið til hendi við sauðfjárslátrun í sláturhúsi Norðlenska.
Tekið til hendi við sauðfjárslátrun í sláturhúsi Norðlenska. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Eigendur Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um að hefja viðræður um samruna félaganna. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar, sem aftur er í eigu um 500 bænda.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka, sem veitir félögunum ráðgjöf í samrunaferlinu.

„Með samruna félaganna verður til öflugur aðili í íslenskri matvælaframleiðslu sem býr að mjög sterkum vörumerkjum Kjarnafæðis og Norðlenska. Það er mat eigenda félaganna að sameinað félag sé betur í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, hágæðaþjónustu á samkeppnishæfu verði,“ segir í tilkynningunni. 

Viðræður fyrirtækjanna eru með fyrirvara um áreiðanleikakönnun, samþykki Samkeppnisyfirvalda og samþykki hluthafafundar Búsældar.

Kjarnafæði var stofnað árið 1985 af bræðrunum Eiði og Hreini Gunnlaugssonum og framleiðir úrval kjötvara, einkum undir vörumerkinu Kjarnafæði.

Hjá félaginu starfa 130 manns og fer starfsemin að mestu fram á Svalbarðseyri. Til viðbótar við rekstur Kjarnafæðis er afurðarstöð SAH á Blönduósi í sömu eigu, en þar eru unnin 52 ársverk, ásamt um 34% hlut í Sláturfélagi Vopnfirðinga, þar sem rekin eru sauðfjársláturhús.

Norðlenska varð til árið 2000 við samruna KEA og Kjötiðjunnar Húsavík, en stækkaði árið 2001 þegar félagið sameinaðist þremur kjötvinnslum Goða. Félagið er í eigu Búsældar, félags kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi, en hluthafar Búsældar eru um 500 bændur.

Um 190 ársverk eru unnin hjá félaginu og skiptist starfsemin á milli Akureyrar, þar sem rekið er stórgripasláturhús og kjötvinnsla, Húsavíkur, þar sem rekin er sauðfjársláturhús og kjötvinnsla fyrir sauðfjárafurðir, Hafnar í Hornafirði þar sem rekið er sláturhús og söluskrifstofu í Reykjavík. Félagið framleiðir úrval kjötvara, einkum undir vörumerkjunum Norðlenska, Goði, Húsavíkurkjöt, KEA og Bautabúrið.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK