Segir Netgíró ekki eiga að vera í vafa

Staða þeirra sem sem nýta Netgíró til að greiða fyrir …
Staða þeirra sem sem nýta Netgíró til að greiða fyrir flugmiða hjá íslensku flugfélögunum virðist óljósari en þeirra sem greiða með kreditkorti. Skjáskot af vefsíðu Netgíró

Lögfræðingur hjá Neytendastofu telur sjálfsagt að forsvarsmenn fyrirtækja þekki rétt viðskiptavina sinna, þetta kemur fram í frétt á ferðavefnum Túristi.is þar sem vakin er athygli á því að forsvarsmenn Netgíró bíði eftir lögfræðiáliti á stöðu þeirra sem nýta greiðsluþjónustu fyrirtækisins.

Korthafar eiga rétt á endurgreiðslu fáist varan eða þjónustan sem þeir keyptu með greiðslukorti ekki endurgreidd. Þetta á líka við ef rekstrarstöðvun flugrekanda verður til þess að korthafi sitji uppi með farmiða sem ekki nýtast. Farþeginn geti í slíkum tilfellum gert kröfu hjá útgefanda kortsins um endurgreiðslu.

Staða þeirra sem sem nýta Netgíró til að greiða fyrir flugmiða hjá íslensku flugfélögunum virðist hins vegar vera óljósari og sagði Helgi Björn Kristinsson, fram­kvæmda­stjóri Netgíró, í Morgunblaðinu í síðustu viku að hann gæti ekki tjáð sig um það hvort Netgíró myndi end­ur­greiða þeim viðskipta­vin­um sem fengu ekki full­greidda vöru eða þjón­ustu af­henta.

Þekkja ekki nógu vel réttindi neytenda

Spurð um þetta þekkingarleysi forsvarsfólks Netgíró segir Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri hjá Neytendastofu, að það sé að sjálfsögðu eðlilegt að fyrirtæki þekki almennt rétt viðskiptavina sinna. „Við höfum þó oft rekið okkur á það í gegnum tíðina að fyrirtæki þekkja ekki nógu vel réttindi neytenda,“ hefur Túristi eftir Þórunni Önnu.

Segir Túristi meginskýringuna á því að greiðslukortafyrirtækin tryggi endurgreiðslu á vöru og þjónustu, sem ekki fæst afhent, vera þá að seljandinn sjálfur fái oft ekki andvirði sölunnar fyrr en varan sé komin í hendur kaupanda. Flugfélög fái því ekki alltaf söluverðið um leið og farþeginn pantar ferðina. „Í tilviki Icelandair skilar fjárhæð fargjalds sér yfirleitt strax inn á reikninga félagsins á meðan færsluhirðingarfyrirtækin halda eftir 80 til 90 prósentum af sölu WOW air þangað til viðkomandi flugferð hefur verið farin,“ hefur vefurinn eftir Vísi.

WOW hefur hins vegar fengið greiðslur Netgíró á innan við 14 dögum og hefur fyrirtækið hvatt viðskiptavini til að greiða farseðla með Netgíró með því að hafa þá ódýrari en að borga með greiðslukorti. Þeir sem nýta kortin greiða 999 krónur ofan á auglýst fargjald, en 249 krónur fyrir Netgíró. Bendir Túristi á að þar með sé í raun ekki hægt að kaupa farmiða hjá WOW á því verði sem auglýst er.

Hefur vefurinn eftir Þórunni Önnu að Neytendastofa hafi verið með til meðferðar markaðssetningu WOW air m.t.t. bókunargjalds félagsins en því máli hefur ekki verið lokið formlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK