Ingigerður tekur við Chip & PIN

Ingigerður Guðmundsdóttir.
Ingigerður Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Ingigerður Guðmundsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Chip & PIN Solutions (CPS), dótturfélags Valitor í Bretlandi. Ingigerður fluttist frá Valitor á Íslandi til Bretlands í júní í fyrra.

Fram kemur í tilkynningu að Ingigerður búi yfir afar dýrmætri reynslu eftir að hafa gegnt margvíslegum störfum hjá Valitor, SPRON, Arion banka og JP Morgan.

Með stöðubreytingunni verður Ingigerður jafnframt fyrsti Íslendingurinn sem stjórnar bresku greiðslumiðlunarfyrirtæki og ein fárra kvenkyns leiðtoga í þessum geira.

„Ég færði mig um set til Bretlands til að styðja við vaxandi starfsemi Chip & PIN Solutions. Við þjónum nú þúsundum viðskiptavina og erum í hópi þekktustu vörumerkja í Bretlandi meðal smárra og meðalstórra fyrirtækja,“ segir Ingigerður í tilkynningunni.

„Þegar ég tek nú við stjórnartaumum fyrirtækisins vakir fyrir mér að hagnýta enn frekar tengslin milli CPS og Valitor til að skara fram úr í þjónustu við viðskiptavini okkar. Ég vil einnig nýta stöðu mína til að hvetja fleiri konur til að gegna stjórnendahlutverki á sviði greiðslumiðlunar og leiðbeina þeim. Ég hlakka mikið til að grípa þetta tækifæri.“

Viðar Þorkelsson, forstjóri Valitor, bætir við: „Valitor er áfram um að ráða til sín framúrskarandi hæfileikafólk og örva það til dáða. Ingigerður er afar hæf til að stjórna Chip & PIN Solutions og býr yfir þeirri reynslu og eldmóði sem til þarf. Ráðning hennar speglar einnig skuldbindingu Valitor við fjölbreytileika, sem er einn af hornsteinum árangurs okkar.“

Ráðning Ingigerðar í nýju stöðuna kemur í kjölfar ráðningar Camillu Sunner sem framkvæmdastjóra Valitor Global Partnerships og dr. Christine Bailey sem framkvæmdastjóra markaðssviðs á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK