Advania festir kaup á Wise

Upplýsingafyrirtækið Advania hefur fest kaup á fyrirtækinu Wise, einum öflugasta söluaðila landsins á Microsoft Dynamics NAV-bókhalds- og viðskiptabúnaði. Hjá Wise starfa um 80 sérfræðingar í hugbúnaðargerð, ráðgjöf og þjónustu.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu en beðið er eftir að Samkeppniseftirlitið leggi blessun sína yfir kaupin. Wise var áður í eigu AKVA group í Noregi.

Wise hefur sérhæft sig í lausnum fyrir sveitarfélög, sjávarútveg, fjármál og ýmiskonar sérfræðiþjónustu en Advania er stærsti söluaðili Microsoft-lausna á Íslandi.

Líkt og hjá Wise starfa þar fjölmargir sérfræðingar í Microsoft Dynamics NAV. Með sameiningu fyrirtækjanna verður til eining sem hefur alla burði til að keppa við alþjóðleg fyrirtæki á þessum markaði.

„Það felast mikil tækifæri í þessari sameiningu. Lausnaframboð Wise fellur mjög vel að lausnaframboði Advania og við getum nýtt þekkingu og stærð okkar til að þjónusta fleiri atvinnugreinar. Upplýsingatæknibransinn er að ganga í gegnum miklar breytingar og með sameiningunni sjáum við fyrir okkur að geta stóreflt þjónustu við viðskiptavini, bæði hér á landi og erlendis. Við erum tilbúin í sókn á alþjóðamarkaði og sameiningin styrkir okkur svo um munar í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi,“ segir Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, í fréttatilkynningunni.

Hanna Andrésdóttir

„Wise hefur náð glæsilegum árangri bæði hér heima og út fyrir landsteinana sem er ekki síst að þakka frábæru starfsfólki sem býr yfir mikilli reynslu og þekkingu. Við hlökkum til að fá það til liðs við okkur. Eftir sameiningu verður Advania með um 200 starfsmenn sem sérhæfa sig í viðskipta- og framleiðnilausnum Microsoft og því með burði til að þróa áfram frábærar lausnir og veita fyrirmyndarþjónustu,“ segir Kristinn Eiríksson, framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania.

Helstu vörutegundir Wise eru NAV í áskrift, Wise Analyzer-greiningartól, sveitarfélagalausnir og fjöldi viðskiptalausna sem notaðar eru af fyrirtækjum víðsvegar um heiminn. Meðal þeirra er WiseFish, sérhönnuð lausn fyrir sjávarútveg sem notuð er af stórum sjávarútvegsfyrirtækjum um allan heim.

Advania er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni með 22 starfsstöðvar á Norðurlöndum. Fyrirtækið aðstoðar viðskiptavini sína við að bæta árangur sinn með framúrskarandi tæknilausnum. Advania þjónustar þúsundir viðskiptavina, alþjóðlegar samsteypur, ríkisstjórnir, opinberar stofnanir og fyrirtæki á öllum sviðum samfélagsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK