Toyota á Íslandi innkallar 329 bíla

Toyota á Íslandi hefur innkallað 329 Toyota bifreiðar af tegundunum …
Toyota á Íslandi hefur innkallað 329 Toyota bifreiðar af tegundunum Prius, Prius Plug-in og C-HR Hybrid sem framleiddar voru á árabilinu 2015 til 2018. AFP

Toyota á Íslandi hefur innkallað 329 Toyota-bifreiðar af tegundunum Prius, Prius Plug-in og C-HR Hybrid sem framleiddar voru á árabilinu 2015 til 2018. Um er að ræða 14 Prius Plug-in bifreiðar, 39 Prius bifreiðar og 276 C-HR bifreiðar.

Ástæða innköllunarinnar er að bifreiðarnar sem um ræðir hafa vélarrafkerfi sem er tengt við stjórntölvu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Neytendastofu. Hlíf er við rafkerfið þar sem það tengist inn á tölvuna. „Vegna misræmis við samsetningu getur rafkerfið lagst upp að hlífinni. Ef ryk eða aðrar agnir hafa safnast saman milli hlífarinnar og rafkerfisins getur titringur frá vélinni valdið því að agnirnar nudda sig gegnum kápuna á rafkerfinu og inn að vírum sem þar eru. Ef kápan á vírunum skemmist getur orðið skammhlaup milli tveggja víra og við það myndast hiti. Ef nægur hiti myndast við skammhlaupið er aukin eldhætta,“ segir í tilkynningunni.  

Við innköllunina verður umrætt rafkerfi skoðað og skipt um ef þurfa þykir. Aðgerð er eigendum að kostnaðarlausu og tekur allt frá 20 mínútum til 4,7 klukkustunda, líkt og fram kemur í tilkynningu. Eigendum umræddra bifreiða verður gert viðvart bréfleiðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK