Tengja vöxt fataverslunar við opnun H&M

H&M opnaði tvær verslanir hér á landi á síðasta ári, …
H&M opnaði tvær verslanir hér á landi á síðasta ári, í Smáralindinni og Kringlunni. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Kortavelta Íslendinga í innlendri fataverslun jókst um 13,1% í ágúst síðastliðnum og nam tæpum 2,2 milljörðum í ágúst nú samanborið við rúma 1,9 milljarða í ágúst í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum hagtölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Tölurnar byggja á kortanotkun og greiðslumiðlun á Íslandi.

Vöxtur hefur verið í fataverslun undanfarna mánuði og hefur kortavelta í flokknum aukist um 17% ef tímabilið apríl til ágúst 2018 er borið saman við sama tímabil í fyrra, eða sem nemur 1,6 milljörðum yfir tímabilið.

Rannsóknarsetur verslunarinnar telur þetta vera til marks um ágætan kaupmátt landsmanna þessi misserin og þá kann opnun H&M hérlendis í lok ágúst í fyrra að skýra vöxtinn að hluta.

Þá hefur netverslun Íslendinga hjá innlendum netverslunum með föt einnig aukist á sama tímabili um 29% og nam 379 milljónum í samanburði við ríflega 11 milljarða í búðum og nam netverslunin því 3,4% af kortaveltu flokksins.

Raftækjaverslun jókst fyrir HM í fótbolta

Maí- og júnímánuðir standa nokkuð upp úr þegar kortavelta í raf- og heimilistækjum er skoðuð í samanburði við mánuðina í kring. Þannig jókst velta raftækja um 11,5% í júní og júlí, frá sömu mánuðum í fyrra, samanborið við hóflegri vöxt mánuðina áður og nokkurn samdrátt í júlí.

Ekki er ólíklegt að heimsmeistaramótið í fótbolta sem hófst í júní hafi átt sinn þátt í aukningunni og margir hafi ákveðið að endurnýja sjónvarpstækin fyrir keppnina, segir í tilkynningu Rannsóknarseturs verslunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK