Novartis boðar uppsagnir í Sviss

Höfuðstöðvar Novartis í Basel.
Höfuðstöðvar Novartis í Basel. AFP

Svissneska lyfjafyrirtækið ætlar að fækka starfsmönnum um rúmlega tvö þúsund á næstu árum í Sviss en mögulega verða 400 störf flutt til Bretlands samfara endurskipulagningu rekstrar.

Alls starfa 12.800 manns hjá Novartis í Sviss en aðgerðunum á að vera lokið árið 2022. Áður hafði verið tilkynnt um fækkun starfa og breytingar hjá Novartis í Japan, Bandaríkjunum auk fleiri ríkja.

Hlutabréf Novartis hækkuðu lítillega eftir að tilkynnt var um uppsagnirnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK