Nýir stjórnendur hjá Origo

Halla Árnadóttir og Ásta Guðmundsdóttir.
Halla Árnadóttir og Ásta Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Halla Árnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs- og launalausna og Ásta Guðmundsdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður kerfisþjónustu hjá Origo.

Halla er með BS-próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað sem ráðgjafi og vörustjóri hjá viðskiptalausnum Origo og forvera þess fyrirtækis frá 2004, að því er segir í tilkynningu frá félaginu.

Ásta er viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst og með MSc í verkefnastjórnun frá Lancaster University. Hún hefur starfað hjá Origo og forvera fyrirtækisins frá 2013 sem verkefnastjóri og hópstjóri í kerfisrekstri.

Origo er þjónustufyrirtæki í upplýsingatækni. Hjá fyrirtækinu starfa 450 manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK