Biðst afsökunar á ummælum

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans.
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans. mbl.is/Rósa Braga

Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, hefur dregið til baka og beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á fundi hjá Félagi atvinnurekenda 11. september.

Þar ályktaði hann út frá miklum arðgreiðslum síðustu ára að ríkið sem eigandi tveggja kerfislegra mikilvægra banka væri að beita þrýstingi til að lækka eigið fé bankanna.

Í leiðréttingu segir hann að ummælin hafi ekki byggst á kynningarefni hans eða skrifuðum texta og að þau hafi ekki verið í samræmi við neitt sem Seðlabankinn hefur látið fara frá sér um þessi mál, og ekki heldur fjármálastöðugleikaráð.

Leiðréttingin í heild sinni:

 „Á fundi mínum hjá Félagi atvinnurekenda 11. september sl. hafði ég í frammi ummæli þar sem ég ályktaði út frá miklum arðgreiðslum undanfarinna ára að ríkið sem eigandi tveggja kerfislega mikilvægra banka væri að beita þrýstingi til að lækka eigin fé bankanna. Þessi ummæli byggðust ekki á kynningarefni mínu eða skrifuðum texta. Þau voru heldur ekki í samræmi við neitt sem Seðlabankinn hefur látið frá sér fara um þessi mál né fjármálastöðugleikaráð sem fjármála- og efnahagsráðherra er formaður í. Ég dreg þessi ummæli því til baka og biðst afsökunar á þeim.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK