Dýrast í Iceland en ódýrast í Bónus

Verslun Iceland við Engihjalla.
Verslun Iceland við Engihjalla. mbl.is/Hjörtur

Iceland er dýrasta matvöruverslunin samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ sem framkvæmd var 10. október. Í 60% tilfella eða 53 af 89 var Iceland með hæsta verðið. Bónus var oftast með lægsta verðið eða í 54 tilfellum af 89 eða 61% tilfella.

Fram kemur í tilkynningu frá ASÍ að lélegar verðmerkingar hafi víða verið að finna í verslun Nettó í könnuninni eða í 18% tilvika en slíkt kemur í veg fyrir að neytendur geti tekið upplýsta ákvörðun við innkaup.

Í þriðjungi tilfella var munurinn á hæsta og lægsta verði í könnuninni yfir 60%, í 16% tilfella yfir 90% verðmunur en í 53% tilfella var verðmunurinn yfir 40%. Mestur verðmunur var á hreinlætisvörum, grænmeti og ávöxtum og ýmiss konar þurrvörum.

Yfir 120% verðmunur

Mikill verðmunur var á flestum þeim vörum sem kannaðar voru. Í 8 tilfellum af 89 var yfir 120% verðmunur og í 7 tilfellum yfir 90% verðmunur, að því er segir í tilkynningunni.

Iceland er sem fyrr sú verslun sem oftast er með hæsta verðið eða í 60% tilfella en þar á eftir kemur Hagkaup með hæsta verðið í 21 tilfelli af 89 eða í 23% tilfella. Bónus var oftast með lægsta verðið eða í 53 af 89 tilfellum eða í 61% tilfella en Fjarðarkaup var næst oftast með lægsta verðið eða í 13 tilfellum.

Ódýrast er í Bónus.
Ódýrast er í Bónus. mbl.is/Golli

Vantaði verðmerkingar í Nettó

„Athygli vekur hversu oft vantaði verðmerkingar í Nettó en samkvæmt lögum ber fyrirtækjum að verðmerkja allar vörur, annaðhvort á vörunni sjálfri eða með hillumerkingu eða skilti við vöruna. Verðmerkingar eru afar mikilvægar til að stuðla að heilbrigðum markaði en nauðsynlegt er að verðmerkja vörur svo að neytandi átti sig á samhenginu milli vöru og verðs. Lélegar verðmerkingar gera neytendum erfitt fyrir að taka upplýsta ákvörðun og grafa þannig undan samkeppni,“ segir í tilkynningunni.

Mestur verðmunur á hreinlætisvörum

Mesti verðmunurinn er á hreinlætisvörum. Sem dæmi má nefna að 175% verðmunur var á dömubindum en lægst var stykkjaverðið á þeim í Costco á 12 krónur en hæst í Iceland á 34 krónur stk. Þá var 118% verðmunur á hæsta og lægsta verði á 50 rykklútum frá Takk. Dýrastir voru þeir í Kjörbúðinni Garði á 649 kr. en ódýrastir í Bónus á 298 krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK