Flutningur á grænmeti kolefnisjafnaður

Haldið verður sérstakt kolefnisbókhald til að reikna út kolefnisfótspor í …
Haldið verður sérstakt kolefnisbókhald til að reikna út kolefnisfótspor í flutningum frá bónda í verslaniar. Ljósmynd/Aðsend

Sölufélag garðyrkjumanna og Kolviður hafa undirritað samning sem felur í sér að flutningur á grænmeti frá grænmetisbændum í Sölufélagi garðyrkjumanna í verslanir verður kolefnisjafnaður að fullu. 

„Íslenskt grænmeti er því orðið enn grænna en áður og neytendur fá tryggingu fyrir því að kolefnisfótspor á flutningi grænmetisins eru jöfnuð að fullu af vottuðum aðilum,“ segir í tilkynningu.

Samningurinn felur m.a. í sér að haldið er sérstakt kolefnisbókhald til að reikna út kolefnisfótspor í flutningum frá bónda og í verslanir. Út frá þeim gögnum er trjám plantað á tilgreindum svæðum og eru þau vernduð í sextíu ár. Þannig er allur akstur vörunnar kolefnisjafnaður

Kolviður er sjóður sem starfar samkvæmt skipulagsskrá samþykktri af stjórnvöldum 2006 og lýtur eftirliti Ríkisendurskoðunar. Stofnendur sjóðsins eru Skógræktarfélag Íslands og Landvernd með stuðningi ríkisstjórnar Íslands, en markmið hans er binding kolefnis í gróðri og jarðvegi til að draga úr styrk koltvíoxíðs (CO2) í andrúmslofti.

Samkvæmt mælingum á flutningi grænmetis frá framleiðendum hefur Kolviður gróðursett tré sem jafnar út kolefnisfótsporin og sú vinna mun halda áfram um ókomin ár.

Stór skref í rétta átt

„Við teljum afar mikilvægt að halda áfram að vera eins vistvæn og græn og við getum. Síðustu ár höfum við tekið mörg stór og mikilvæg skref í þá átt. Þannig er yfir áratugur liðinn frá því að við hættum allri notkun frauðplasts, tæp 10 ár frá því að allri notkun á plastbökkum var hætt og bakkar úr endurvinnanlegum pappa teknir upp í staðinn, fljótlega koma á markað jarðgerðanlegar umbúðir unnar úr jurtasterkju og einnig eru væntanlegir kartöflubréfpokar fyrir okkar kartöflur. Að kolefnisjafna nú akstur grænmetisins er eðlilegt næsta skref. Íslendingar vita hvaðan íslenskt grænmeti kemur og nú að það komi í verslanir kolefnisjafnað,“ segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna í tilkynningunni.

Um 600 þúsund trjám verið plantað

„Kolviðarskógar eru nú þegar á Geitasandi á Rangárvöllum og á Úlfljótsvatni og unnið er að samningum um uppbyggingu skógar við Skálholt. Frá upphafi hefur um 600.000 trjám verið plantað í Kolviðarskóga og þeim fyrirtækjum sem vilja kolefnisjafna sig fjölgar jafnt og þétt. Það er afar ánægjulegt að Sölufélag garðyrkjumanna stígi nú þetta skref og stækki enn frekar Kolviðarskóga landsins og geri grænmetið enn grænna,“ segir Reynir Kristinsson, framkvæmdastjóri Kolviðs í tilkynningunni. .

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK