WOW air mun í dag hefja sölu á flugsætum til Vancouver í Kanada en áætlunarflug þangað hefst 6. júní. Flogið verður sex sinnum í viku til að byrja með, á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum, föstudögum og sunnudögum.
Frá þessu er greint í tilkynningu en flugtíminn er tæpir átta klukkutímar.
„Í kjölfar mikillar velgengi í Kanada höfum við ákveðið að bæta Vancouver við leiðarkerfi okkar. Það er frábært að geta boðið enn fleirum upp á þann valkost að fljúga ódýrt yfir hafið,“ er haft eftir Skúla Mogensen eiganda og forstjóra WOW air.
WOW hættir flugi til St. Louis í Bandaríkjunum 7. janúar og þá stendur ekki til að borgirnar Cincinnati og Cleveland verði á sumaráætlun flugfélagsins næsta sumar.