Friðrik hættir sem forstjóri RB

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna, hefur sagt starfi sínu …
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna, hefur sagt starfi sínu lausu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Reiknistofu bankanna (RB), hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu. Hann mun starfa áfram hjá RB þar til nýr forstjóri hefur störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reiknistofunni. Friðrik hefur verið forstjóri RB frá því í febrúar 2011 og hefur því verið forstjóri í tæp átta ár. Fram kemur að engin röskun verði á starfsemi RB vegna þessara breytinga.

„Ég hef stýrt RB í hátt í átta ár og fannst kominn tími til að breyta til og horfa til nýrra verkefna. Í fyrirtæki sem veitir fjármálakerfinu jafnmikilvæga þjónustu skiptir höfuðmáli að vandað sé til verka þegar kemur að breytingum á yfirstjórn og taldi ég því mikilvægt að upplýsa strax um ákvörðun mína þannig að ráða mætti nýjan forstjóra í góðu tómi,“ er haft eftir Friðriki í tilkynningunni.

RB sinnir þróun, viðhaldi og rekstri hinna ýmsu lausna fyrir fjármálafyrirtæki sem og tryggingafélög og rekur öll megingreiðslukerfi landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK