Gylfi hættir sem forstjóri Eimskips

Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gylfi Sigfússon mun láta af störfum sem forstjóri Eimskipafélags Íslands um næstu áramót. Hefur hann komist að samkomulagi við stjórn félagsins um það, en Gylfi mun frá byrjun næsta árs stýra daglegum rekstri Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada, ásamt flutningsmiðlunarfyrirtækinu Eimskip Logistics. Ekki hefur verið ráðið í starf forstjóra félagsins, en stjórn mun setja ráðningarferli af stað.

Gengi hlutabréfa Eimskips hefur lækkað mikið síðasta árið og hefur lækkað um 28,4% á síðustu 12 mánuðum. Var það í 279,5 krónum á hlut 16. nóvember í fyrra, en stóð í 200 krónum við lok markaða á föstudaginn. Í lok síðasta mánaðar sendi félagið frá sér afkomuviðvörun og lækkaði gengi bréfanna þá um 13% á einum degi.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar er haft eftir Baldvin Þorsteinssyni, stjórnarformanni Eimskips, að Gylfi hafi starfað hjá Eimskipi í 28 ár, þar af síðustu 10 ár sem forstjóri. Hann hafi tekið við félaginu og leitt það í gegnum krefjandi endurskipulagningu, en áður en hann varð forstjóri stýrði hann þeim einingum í Ameríku sem hann mun nú taka við að nýju.  

Segir Baldvin að endurskipulagningin hafi tekist vel. „Verkefnið var ekki aðeins mikilvægt fyrir Eimskip heldur einnig fyrir hagsmuni Íslands; að tryggja óhefta flutninga til og frá landinu á erfiðum tímum, treysta rekstrargrundvöll heima og erlendis, auk þess sem hann stýrði félaginu til nýrrar framtíðar með dugmiklu og samstilltu starfsfólki. Vinnan við endurskipulagninguna tókst vel og félagið stendur sterkt eftir.“

Þá er haft eftir Gylfa að honum sé efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu stjórnarmanna, stjórnenda og starfsmanna sem og viðskiptavina félagsins sem hann hafi unnið með. „Þessir aðilar settu allt sitt á vogarskálarnar til að koma Eimskip aftur á skrið. Rekstrar- og fjárhagsleg endurskipulagning félagsins reyndi mikið á starfsfólk en uppskeran var góð og nú siglir félagið inn í bjarta og spennandi tíma,“ er haft eftir Gylfa.

Á stjórnarfundi félagsins í dag tók Jóhanna á Bergi einnig sæti í aðalstjórn Eimskips, en hún hefur setið í varastjórn félagsins frá árinu 2013. Hún er framkvæmdastjóri flugfélagsins Atlantic Airways í Færeyjum, en var áður framkvæmdastjóri P/f Faroe Ship, dótturfélags Eimskips í Færeyjum.

Þá hefur stjórn félagsins kosið Hrund Rudolfsdóttur varaformann stjórnar, í stað Víglundar Þorsteinssonar sem lést fyrir skömmu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK